Íslenski boltinn

Stelpurnar fóru bara á taugum í leiknum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðmunda Brynja Óladóttir í leiknum í gær.
Guðmunda Brynja Óladóttir í leiknum í gær. Mynd/Íris Björk Eysteinsdóttir
Íslenska 17 ára landsliðið spilar um bronsið á Evrópumótinu í Nyon í Sviss eftir 0-4 tap á móti Spáni í undanúrslitaleiknum í gær.

Íslensku stelpurnar mæta Þýskalandi í leiknum um þriðja sætið á sunnudaginn en þýsku stelpurnar töpuðu á móti Frökkum í vítakeppni í undanúrslitum í gær.

Íslenska liðið hafði unnið alla sex leiki sína og skorað 37 mörk á leið sinni í úrslitin en íslensku stelpurnar áttu aldrei möguleika gegn sterku spænsku liði.

„Við áttum bara einfaldlega afleitan dag. Leikmenn fóru bara á taugum og þá fer allt forgörðum, bæði sendingar og móttaka. Fólk fer að fela sig og vill ekki fá boltann. Það var nú það sem gerðist,“ sagði Þorlákur Árnason, þjálfari íslenska liðsins, en íslensku stelpurnar voru langt frá því að sýna þann leik sem kom þeim í úrslitakeppnina.

„Þetta var okkar versti leikur. Það er alltaf áfall þegar þú spilar svona illa. Við bjuggum aldrei til leik og stelpurnar eru mest svekktar með það,“ sagði Þorlákur en það var erfitt að horfa upp á mörk spænska liðsins sem voru einstaklega klaufaleg.

 

„Mörkin voru mjög ódýr en það er ekki við neinn einn að sakast. Við unnum ekki nægilega vel saman sem lið og því fór sem fór. Við ætlum að vinna leikinn á sunnudaginn og við munum ekki spila svona leik aftur,“ segir Þorlákur en íslenska liðinu gekk afar illa að halda boltanum og létta af pressu spænska liðsins.

„Það var vandamálið því það var eins og boltinn væri heitur. Við erum góðar í að halda boltanum innan liðsins og vorum ekki að sýna okkar réttu hlið í þeim efnum. Við þurfum að vinna í andlega þættinum það kom manni bara á óvart að leikmenn skyldu ekki ráða við spennustigið því það er mikil reynsla í þessu liði,“ sagði Þorlákur.

„Það er enginn pressa á okkur fyrir þennan leik á sunnudaginn því fólk býst ekki við miklu eftir þetta. Við gírum okkur upp í það enda höfum við ágætan tíma til að fara yfir okkar leik,“ sagði Þorlákur að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×