Íslenski boltinn

Jóhann: Erum tilbúnir til að deyja fyrir klúbbinn

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Þórsarar munu eflaust fagna vel og lengi sigrinum á ÍBV í kvöld. Jóhann Helgi Hannesson segir að sigurinn færi liðinu aukið sjálfstraust fyrir framhaldið.

"Við vissum að við ættum góða möguleika ef við legðum okkar alla fram, sérstaklega hérna á heimavelli þar sem við trúum við því ekki að við getum tapað. Við erum tilbúnir að deyja fyrir klúbbinn, allan leikinn," sagði Jóhann.

"Þetta er gott skref í átt að fyrsta titli Þórs. Sumarið byrjaði ekki nógu vel en sjálfstraustið er að koma. Við erum að spila betur og betur með hverjum leiknum og vonandi heldur þetta fína gengi áfram."

"Þetta heldur bara sjálfstraustinu í botni og nú er bara að taa dolluna," sagði Jóhann




Fleiri fréttir

Sjá meira


×