Íslenski boltinn

Strákarnir unnu Svía - Árni með bæði mörkin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kristinn R. Jónsson er þjálfari íslenska 19 ára landsliðsins.
Kristinn R. Jónsson er þjálfari íslenska 19 ára landsliðsins. Mynd/www.ksi.is
Strákarnir í 19 ára landsliðinu fylgdu eftir stórsigri á Wales í fyrsta leik sínum á Svíþjóðarmótinu með því að vinna 2-0 sigur á heimamönnum Svía í öðrum leik sínum í dag.Kristinn R. Jónsson er þjálfari íslenska liðsins.

Blikinn Árni Vilhjálmsson skoraði bæði mörk Íslands í leiknum á 38. og 62. mínútu en það síðara kom úr vítaspyrnu. Árni skoraði líka eitt mark í 5-1 sigrinum á Wales.

Ísland leikur á laugardaginn lokaleik sinn á mótinu þegar þeir mæta Norðmönnum en þeir töpuðu gegn Wales í dag, 1-3. Þegar ein umferð er eftir er Ísland með sex stig, Wales og Svíþjóð með þrjú og Noregur ekkert.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×