Íslenski boltinn

Geir: Þetta eru mótherjar sem við eigum að geta ráðið við

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ og landsliðsþjálfarinn Ólafur Jóhannesson.
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ og landsliðsþjálfarinn Ólafur Jóhannesson. Mynd/Anton
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, var í viðtali hjá Guðjóni Guðmundssyni í fréttum Stöðvar 2 í kvöld en Geir var í Ríó í Brasilíu í gær þegar dregið var í riðla í undankeppni HM 2014. Ísland lenti þar í riðli með Noregi, Slóveníu, Sviss, Albaníu og Kýpur en að flestra mati er þetta ekki mjög spenandi eða söluvænn riðill.

„Við megum vel við una með þau lið sem lentu með okkur í riðli. Ég sá það á staðnum að Norðmenn voru mjög ánægðir með þau lið sem þeir fengu komandi úr efsta styrkleikaflokki. Við þurfum að fara að vinna leiki og þetta eru mótherjar sem við eigum að geta ráðið við. Við þurfum samt fyrst og fremst að bæta leik okkar liðs," sagði Geir en Guðjón spurði Geir síðan hvort þessi lið í okkar riðli væru söluvænleg.

„Stærsti hluti okkar tekna kemur í gegnum sjónvarpssamninga og við vorum búnir að ganga frá þeim samningum fyrir þennan drátt. Hefðum við ekki gert það þá hefði ég verið í erfiðum málum," sagði Geir en hann vildi ekki gefa neitt út um framtíð Ólafs Jóhannessonar landsliðsþjálfara.

„Ólafur mun klára sinn samning en við munum síðan taka upp þau mál á næstu mánuðum. Ólafur er í starfi hjá okkur og það eru krefjandi verkefni framundan. Við styðjum hann eindregið í þeim," sagði Geir.

„Það er alveg ljóst að síðustu tvær undankeppnir hafa ekki gengið nógu vel. Við höfum verið að eiga við erfiða mótherja en við þurfum að gera betur og þá sérstaklega á heimavelli," sagði Geir.

„Við getum gert betur og ég horfi fyrst og fremst til þess að við eigum mjög efnilega sveit ungra knattspyrnumanna sem eru að koma upp. Það hefur vakið mikla athygli og margir hafa komið að máli við mig og lýst aðdáun sinni á leik íslenska liðsins í undir 21 árs keppninni. Ég held að sá efniviður muni styrkja landslið Íslands í framtíðinni," sagði Geir.

Ólafur Jóhannesson var ekki viðstaddur dráttinn í Ríó í gær en Geir segir að engin skilaboð felist í því.

„Þessi keppni hefst eftir eitt ár og það var engin þjálfari á staðnum hjá þeim liðum sem við lentum með í riðli," sagði Geir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×