Íslenski boltinn

Rúnar í hópi með Laudrup, Charlton, Zidane, Beckenbauer og Dalglish

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rúnar Kristinsson.
Rúnar Kristinsson. Mynd/Daníel
Rúnar Kristinsson, fyrrum landsliðsmaður og núverandi þjálfari toppliðs KR, fær sérstaka viðurkenningu frá UEFA fyrir landsleik Íslands og Kýpur á Laugardalsvelli þriðjudaginn 6. september næstkomandi en þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ í kvöld. Geir Þorsteinsson formaður KSÍ, mun afhenda Rúnari verðlaunin fyrir hönd UEFA.

Rúnar er einn af þeim 109 leikmönnum innan aðildarsambanda UEFA sem hefur leikið yfir hundrað A-landsleiki fyrir þjóð sína.  Leikmennirnir 109 koma frá 36 knattspyrnusamböndum og fer viðlíka afhending fram á heimaleikjum þessara þjóða í undankeppni EM í september og október.

„Allir fá þeir afhentan annars vegar sérstakan verðlaunapening og hins vegar sérhannaða húfu.  Hvers vegna húfu (?), kynni fólk að spyrja sig.  Þannig er, að þegar fyrstu landsleikirnir fóru fram, milli Skotlands og Englands á ofanverðri 19. öld, tíðkaðist að leikmenn fengju húfu („cap“ á ensku) til minningar um að hafa tekið þátt í leiknum.  Sú hefð hélt reyndar lengi vel velli á Bretlandseyjum.  Seinna meir var landsleikjafjöldinn talinn í húfum („caps“) og enn er gjarnan talað um „caps“ þegar fjallað er um landsleikjafjölda manna á enskri tungu," segir í frétt á heimasíðu KSÍ.

Rúnar Kristinsson, lék alls 104 A-landsleiki fyrir Íslands hönd og skoraði 3 mörk, er svo sannarlega í góðum hópi, því á meðal þeirra sem UEFA heiðrar á sama hátt eru kappar eins og Michael Laudrup, Bobby Charlton, David Beckham, Zinedine Zidane, Franz Beckenbauer, Lothar Matthaus, Fabio Cannavaro, Edwin van der Sar, Pat Jennings, Luis Figo, Gheorghe Hagi, Kenny Dalglish, Raúl González og Andriy Shevchenko.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×