Formúla 1

Tolla og skattayfirvöld í Indlandi að hrella Formúlu 1 liðin

Lewis Hamilton ók á götum Bangalore í Indlandi í vikunni, en fyrsta Formúlu 1 mótið í landinu fer fram í lok október.
Lewis Hamilton ók á götum Bangalore í Indlandi í vikunni, en fyrsta Formúlu 1 mótið í landinu fer fram í lok október. MYND: MCLAREN F1
Fyrsta Formúlu 1 mótið í Indlandi fer fram í lok október, en snuðra er hlaupinn á þráðinn þar sem tolla og skattayfirvöld þar í landi eru ströng hvað allan innflutning varðar. Forráðamenn Formúlu 1 liða hafa verið í viðræðum við tilheyrandi aðila varðandi innflutning á bílum og starfsmönnum, en svo virðist sem skattleggja eigi bæði lið og ökumenn fyrir að koma til landsins.

Rekstraraðilar Jaypee brautinnar sem verður keppt á hafa boðist til að borga brúsann, en samkvæmt frétt á autosport.com er málið óleyst enn sem komið er. Segir í fréttinni að spurning sé hvort keppnisliðin og ökumenn verði skattlagðir miðað við árstekjur, en skattayfirvöld virðast hafa rétt til að skattleggja á þennan hátt. Jafnvel þó viðkomandi aðilar séu bara að heimsækja landið. Tolla og skattayfirvöld hafa þegar hafnað því að veita undanþágu frá reglum sínum.

Martin Whitmarsh, yfirmaður McLaren segir að mótið í Indlandi muni fara fram, þrátt fyrir þetta vandamál sem er óleyst.

„Það er áhyggjuefni fyrir ökumenn og lið, að því þetta eru harðsnúinn skattayfirvöld. Ég get ekki fullyrt hvar við erum staddir með málið, en viðræður eru í gangi. Ég er viss um að við keppum í Indlandi, en við þurfum að leysa þetta mál", sagði Whitmarsh.

Lewis Hamilton ók á götum Bangalore í Indlandi í vikunni, en hann fór frá Singapúr til að keyra McLaren bíl í kynningarskyni. Mótið í Indlandi verður á nýrri braut, sem Hermann Tilke hannaði. Með því að smella hér, er hægt að skoða nýja mótssvæðið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×