Þórsarar voru búnir að bíða lengi eftir þessum sigri Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. október 2011 13:00 Darrin Govens skoraði 40 stig í Seljaskólanum í gærkvöldi. Mynd/Hag
Benedikt Guðmundsson og lærisveinar hans í Þór úr Þorlákshöfn unnu óvæntan níu stiga sigur á ÍR, 101-92, í Seljaskólanum í Iceland Express deild karla í körfubolta í gærkvöldi en það er óhætt að segja að Þórsarar hafi verið búnir að bíða lengi eftir þessum útisigri. Þórsarar eru að spila í Iceland Express deild karla í fyrsta sinn í rúm fjögur ár en lítið hafði gengið hjá liðinu utan Þorlákshafnar þegar liðið var síðast meðal þeirra bestu. Þór vann ekki útileik þegar liðið spilaði síðast í úrvalsdeildinni 2006-2007 og tapaði ennfremur tíu síðustu útileikjum sínum fyrsta tímabilið sitt 2003-2004. Þórsarar voru því búnir að tapa 22 útileikjum í röð í úrvalsdeild karla en þeir töpuðu naumlega fyrir KR í DHL-höllinni í fyrstu umferðinni. Þess má geta af þrjú af ellefu töpum Þórs á útivelli veturinn 2006-2007 komu eftir framlengingu og eitt að auki með aðeins eins stiga mun. Þór vann sinn fyrsta útileik í úrvalsdeild karla sem var á móti Breiðabliki í Smáranum 19. október 2003 eða fyrir rétt tæpum átta árum síðan. Nú er bara vonandi fyrir Þórsara að þeir þurfi ekki að bíða svona lengi eftir þeim næsta.
Dominos-deild karla Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Enski boltinn Fleiri fréttir Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Sjá meira