Tvö heitustu liðin mætast í DHL-höllinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. desember 2011 13:15 J´Nathan Bullock mætir Keflavík í fyrsta sinn í dag.
Suðurnesjaliðin Grindavík og Keflavík mætast í DHL-höllinni í dag í úrslitaleik Lengjubikars karla en þau unnu undanúrslitaleiki sína í gærkvöldi. Grindavík vann 80-66 sigur á Þór en Keflavík vann 93-88 sigur á Snæfelli. Leikurinn hefst klukkan 16.00 og verður einnig í beinni útsendingu á Sporttv. Það er óhætt að segja að þarna mætist heitustu liðin í karlakörfunni, Grindavík er búið að vinna fimmtán fyrstu leiki tímabilsins og Keflavíkurliðið er búið að vinna sex síðustu leiki sína í Iceland Express deildinni og Lengjubikarnum. Þetta verður þriðji úrslitaleikur Grindavíkur og Keflavíkur í fyrirtækjabikarnum en þau mættust einnig í úrslitaleikjunum 1998 og 2002. Í báðum þessum úrslitaleikjum stýrði Sigurður Ingimundarson Keflavíkurliðinu til sigurs og hann er einnig við stjórnvölinn hjá Keflavík í dag. Keflvíkingar endurheimta stórskyttuna Magnús Þór Gunnarsson úr banni fyrir þennan leik og það er mikill liðstyrkur að fá hann ferskan inn í liðið á nýjan leik. Liðin hafa mæst einu sinn í Iceland Express deildinni í vetur en Grindavík vann þá 86-80 sigur. Bæði liðin hafa bætt við sig erlendum leikmanni síðan þá. Grindavík fékk til sín J´Nathan Bullock sem var með 25 stig og 17 fráköst í sigrinum á Þór í gær. Keflavík bætti hinsvegar við sig leikstjórnandanum Steven Gerard Dagustino sem var með 26 stig og 8 stoðsendingar í sigrinum á Snæfelli í gær.
Dominos-deild karla Mest lesið Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Fótbolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Fótbolti Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Hulda Clara fagnaði sigrinum með því að hoppa út í vatnið Golf Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Körfubolti Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Fótbolti Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Handbolti Fleiri fréttir Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Sjá meira