Körfubolti

Ólafur: Vantar drápseðlið í okkur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ólafur Ólafsson.
Ólafur Ólafsson. Mynd/Daníel

Ólafur Ólafsson, leikmaður Grindavíkur, var afar svekktur með tapið gegn Snæfelli í kvöld rétt eins og félagar hans. Grindvíkingar gáfu eftir á lokamínútunum og misstu frá sér það sem virtist vera unninn leikur.

"Ég hef engar útskýringar á þessu hruni. Við bara hættum að spila. Við hittum illa fyrir utan og reyndum að fara inn í teiginn þar sem Ryan var heitur í síðari hálfleik.

Það gekk vel framan af en svo hættum við að gera það síðustu þrjár mínútur leiksins. Við hættum líka að spila liðsvörn og því fór sem fór," sagði Ólafur sem vildi þó ekki meina að Grindavík hefði farið á taugum.

"Það vantar drápseðlið í okkur svo við klárum svona leiki. Þetta var ekki nógu gott og við hefðum átt að gera betur."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×