Gómsætur frómas 1. nóvember 2011 00:01 Loftur Ólafur Leifsson.
Loftur Ólafur Leifsson fékk uppskrift að gómsætum frómas frá tengdamóður sinni fyrir aldarfjórðungi og hefur á þeim tíma gert alls kyns tilraunir á honum. Loftur fer sjaldnast eftir uppskriftum og því var erfitt að toga þessa upp úr honum, en innihaldið verður að sérlega bragðgóðu sérrí- eða koníaksfrómastriffli. "Ég hef alltaf haft gaman af því að elda og gera tilraunir með mat," segir Loftur, sem er eigandi auglýsingastofunnar Skaparans. Eins og fleiri sem eru eldhúsvænir fer Loftur sjaldnast eftir uppskriftum. ,,Ég breyti þeim oftast og slumpa í stað þess að mæla nákvæmlega. Þennan frómas fékk ég upphaflega frá tengdamóður minni fyrir svona 25 árum en hann er búinn að taka miklum breytingum á þeim tíma. Ætli ég geri ekki einhverjar breytingar á hverju ári. Nú er þetta orðið sambland af frómas og triffli, sem er neðst í botninum." Loftur segir að þrátt fyrir tilraunirnar hafi frómastrifflið aldrei orðið óætt. "En það hafa komið ár þar sem jólafrómasinn hefur verið betri," segir hann og hlær.- uhjLumar þú á uppskrift? Sendu okkur á netfangið jol@jol.is.
Jólamatur Mest lesið Jólatrukkar með tölvuleikjahelli og stofu jólasveinsins Jólin Gaman að fá skringilega pakka Jól Heldur jólin í herstöð í Afganistan Jól Gömul þula Jól Svona á að pakka fallega Jólin Björgvin og félagar sungu inn jólin - myndir Jól Les jólakveðjurnar í síðasta sinn Jól Rauðkál með beikoni eða kanil Jól Í splunkunýjum náttkjól, með bók í hönd og Mackintosh í skál Jól Jólakaka frá ömmu Jólin