Elíza: Ilmurinn af greni og smákökum jólalegur 1. nóvember 2011 00:01 Eliza Geirsdóttir Newman upplifði sérstaka næturmessu í Cornwall í Englandi þar sem presturinn var fullur. „
Ég kemst í hátíðarskap við minnsta tækifæri og æsist ægilega upp í mikið jólasprell," segir söngkonan Eliza Geirsdóttir Newman sem gaf nýverið út plötuna Pie in the Sky og inniheldur tíu frumsamin lög. „Þannig að ég reyni að halda mig frá öllu jólalegu þar til rétt fyrir jól svo ég sé ekki búin á því þegar aðfangadagur loksins kemur." „Ætli besta gjöfin hafi ekki verið Bítlasafnið sem ég fékk frá foreldrum mínum þegar ég var fimmtán ára. Það hafði mikil áhrif á mig og hefur gefið mér óteljandi gleðistundir." „Mér finnst ilmurinn af greni og smákökum afar jólalegur og svo auðvitað „Last Christmas" með Wham, þá missi ég mig alveg." „Aðfangadagskvöld í ár verður haldið í Keflavík hjá pabba og fjölskyldu," svarar hún spurð út í aðfangadagskvöld í ár og segir: „Það er alltaf stuð í Kef." „Ég er alveg pakkasjúk og finnst ekkert skemmtilegra en að tæta upp pakka þannig mér er nokkuð sama hvað er í pakkanum." „Ég á nú mörg eftirminnileg jól en mér dettur í hug þegar ég eyddi jólunum í Cornwall í Englandi fyrir nokkrum árum og fór í miðnæturmessu sem var alveg óskaplega skemmtileg," svarar Eliza þegar við fölumst eftir eftirminnilegum jólum sem hún hefur upplifað. „Rafmagnið fór af, jólatréð datt ofan á einhvern gamlan kall, presturinn var fullur, kórinn alveg svakalega falskur og svo kom flóð og enginn komst út í klukkutíma." „Rafmagnið fór af, jólatréð datt ofan á einhvern gamlan kall, presturinn var fullur, kórinn alveg svakalega falskur..." „Þetta var með skemmtilegri messum sem ég hef farið í verð ég að segja," segir hún. „Ég er alveg pakkasjúk og finnst ekkert skemmtilegra en að tæta upp pakka þannig mér er nokkuð sama hvað er í pakkanum," segir Eliza. „Besta jólagjöfin er náttúrulega barbí hestavagninn sem ég fékk í jólagjöf þegar ég var sjö ára. Nei djók!" segir hún. Kolrassa krókríðandi. „Ætli besta gjöfin hafi ekki verið Bítlasafnið sem ég fékk frá foreldrum mínum þegar ég var fimmtán ára." „Það hafði mikil áhrif á mig og hefur gefið mér óteljandi gleðistundir," segir Eliza.-elly@365.is
Jólafréttir Mest lesið Jóladagatal Hurðaskellis og Skjóðu - 9. desember Jól Liggur í teiknimyndasögum Jól Sálmur 74 - Gleð þig særða sál (Kirkjan ómar öll) Jól Hátíðlegar arabískar kræsingar Jól Kjötbollur í hátíðarbúning Jólin Spáð stormi fyrir austan Jólin Spáð er hvítum jólum fyrir norðan og vestan Jól Var stundum kallaður Jesús Jólin Jólalag dagsins: Jógvan Hansen og Friðrik Ómar sungu um mömmu kyssa jólasvein á íslensku og færeysku Jól Sálmur 82 - Heims um ból Jól
Jólalag dagsins: Jógvan Hansen og Friðrik Ómar sungu um mömmu kyssa jólasvein á íslensku og færeysku Jól
Jólalag dagsins: Jógvan Hansen og Friðrik Ómar sungu um mömmu kyssa jólasvein á íslensku og færeysku Jól