Tinni og Kolbeinn í Tölvulandi Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 28. október 2011 06:00 Ævintýri Tinna Tinni - kvikmynd 2011
The Adventures of Tintin Leikstjórn: Steven Spielberg Leikarar: Jamie Bell, Andy Serkis, Simon Pegg, Nick Frost, Daniel Craig Belgíski blaðasnápurinn Tinni er mættur á hvíta tjaldið í öllu sínu tölvuteiknaða veldi og það er sjálfur Steven Spielberg sem kom honum þangað. Í samvinnu við Peter Jackson hefur hann blandað saman söguþráðum nokkurra Tinnabóka og gert úr þeim kvikmynd sem er mikið sjónarspil. Þrívíddarteikningarnar eru svo glæsilegar í allri sinni nákvæmni að myndin lítur nánast út eins og leikin kvikmynd. Maður spyr sig samt í kjölfarið; eru þúsund þurrkaðir þorskhausar úr Þistilfirði betri þegar þeir eru teiknaðir í tölvu? Myndin er fagmannlega framreidd fjölskylduskemmtun og útlitslega vankanta er hvergi að finna. Aðdáendur Tinna eru þó vísir til að verða spældir með eitt og annað. Ég man til dæmis ekki eftir því að Kolbeinn kafteinn hafi verið svona mikill vælukjói í bókunum. Hér er hann aumkunarverður komplexa-alki, í stað reiða og síbölvandi drykkjusvelgsins sem við þekkjum flest. Löng hasaratriði þar sem myndavélin fer um allt og þyngdaraflið gleymist um stund þykja vissulega móðins, en að hafa slík atriði í kvikmynd um Tinna passar illa. Gömlu sögurnar lögðu ávallt áherslu á hið dularfulla og hættulega, frekar en yfirkeyrðan hasar og bílaeltingaleiki. Hið dularfulla og hættulega er þó blessunarlega enn til staðar. Menn eru skotnir, slegnir, stungnir og svæfðir með klóróformi, alveg eins og í bókunum góðu. En eins og með aðrar seinni tíma ævintýramyndir Spielbergs er Tinni einfaldlega of stílhreinn og steríll til að heilla fólk á sama máta og Indiana Jones gerði á níunda áratugnum og Júragarðurinn á þeim tíunda. Niðurstaða: Ágætis fjölskyldufjör en Spielberg þarf að ydda blýantinn betur næst.
Lífið Mest lesið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Lífið samstarf Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Fleiri fréttir Kulnaður Köngulóarmaður skýtur klístruðum púðurskotum Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Sjá meira