Fágaður Felix Trausti Júlíusson skrifar 17. nóvember 2011 13:00 Þögul er nóttin með Felix Bergssyni.
Tónlist. Þögul nóttin. Felix Bergsson. Þó að Felix Bergsson hafi sungið inn á fjölmargar plötur á síðustu áratugum þá er Þögul nóttin hans fyrsta sólóplata. Á henni syngur hann lög ýmissa höfunda við ljóð nítjándu aldar skáldsins Páls Ólafssonar, en eftir Pál liggur fjöldi ljóða, meðal annars lausavísur og ástarljóð. Það er Jón Ólafsson sem útsetur og stjórnar upptökum á plötunni og semur líka nokkur laganna, en önnur lög eru eftir Magnús Þór Sigmundsson, Hörð Torfason, Hróðmar Inga Sigurbjörnsson og fleiri. Þögul nóttin hefur yfir sér fágað yfirbragð. Það hefur greinilega verið vandað til verka. Hljóðfæraleikur er fínn og það sama má segja um söng Felix sjálfs og söngkvennanna Jóhönnu Vigdísar Arnardóttur og Valgerðar Guðnadóttur. Það sem truflar mig samt svolítið, og dregur þessa annars fínu plötu niður, er að útsetningarnar eru á köflum einum of mikið eftir bókinni. Þær verða klisjukennadar í lögum eins og Þér er að verða lífið leitt og lokalaginu Á vörum þér. Það má segja að þó að margt sé vel gert og flutningur sé vandaður þá nái Þögul nóttin ekki að verða spennandi tónlistarlega. Platan er samt ekki slæm. Það eru fín lög inn á milli, til dæmis titillagið Þögul nóttin, lag Harðar Torfa, Án þín, sem er í flottri útsetningu, og upphafslagið Vorljóð. Á heildina litið þokkalegasta plata, en Felix gerir örugglega betur næst. Niðurstaða: Vönduð og vel flutt tónlist, en nær ekki að verða spennandi.
Mest lesið Var mjög heit fyrir lýtalækninum Lífið Eiður Smári og Halla Vilhjálms í skíðaævintýri Lífið „Samband okkar hefur alltaf verið flókið“ Lífið Ævintýrapar selur fallega fyrstu eign Lífið Hefndi kossins með kossi Lífið Eiginmaður Dolly Parton er látinn Lífið Flytur ekki inn í lúxusíbúðina Lífið Sturla elti Tinder-ástina til paradísarstrandar í Mexíkó Lífið Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár Lífið samstarf Sýnir vonandi öðrum konum að lífið er ekki búið eftir þrítugt Lífið Fleiri fréttir Tveggja barna miðaldra móðir sem er sjúk í strákinn Ævar vísindamaður í miðaldrakrísu Dansandi lögreglukór og fangarnir í Sniglabandinu Fyrirsjáanlegt fjölskyldudrama Bob og Robbie í bobba Fleetwood Mac: Þegar eftirlíkingin verður betri en raunveruleikinn Sjá meira