Fimm mánuðir í helvíti Atli Fannar Bjarkason skrifar 15. janúar 2011 12:43 Í byrjun árs tók ég þá ákvörðun að smakka ekki áfengi í janúar. Ég er maður öfganna og þessi saklausi mánuður hefur stökkbreyst í fimm langa mánuði þar sem svo lítið sem einn dropi af dýrðlegum gerjuðum unaðsvökva má ekki sleppa inn fyrir varir mínar. 15 dagar búnir - 136 eftir. Hvað hef ég gert? Skömmu eftir að ákvörðunin var handsöluð áttaði ég mig á því að ég hafði skapað skrímsli. Fram undan er gósentíð áfengisunnandans: Þorrablót, árshátíðir og afmæli - þar með talið mitt. Svo ég tali ekki um vorið sem er handan við hornið með tilheyrandi rennandi blautum grillveislum. Ákvörðunin hefur vakið ótrúlega hörð viðbrögð. Vinir mínir telja að ég hafi misst vitið, enda hefur eldheitt ástarsamband mitt og bjórsins verið það sem flestir töldu að myndi endast. Ég viðurkenni reyndar að ýmis teikn eru á lofti um að geðheilsu minni hafi hrakað; ég er farinn að stunda íþróttir reglulega, hættur að drekka kók og ég man ekki hvenær ég borðaði hamborgara síðast. En áfengispásan á sér því miður ekki svo djúpstæðar rætur. Ég hef nefnilega aldrei fundið fyrir miskunnarlausum eyðileggingarmætti áfengis að neinu ráði, þótt ég hafi veitt freistingagyðjunni Atë nokkuð frjálsan aðgang að líkama mínum undanfarin ár. Allavega um helgar. Atë er gríska og stendur fyrir rústir, heimsku og blekkingu. Taumlausri ofneyslu á áfengi verður ekki betur lýst, en reynsla mín hefur þó að mestu snúist um skemmtun, læti og gráa, þögula sunnudaga. Eins óspennandi og það kann að hljóma er þessi ákvörðun nánast einungis tekin til að sjá hvort þetta sé ekki örugglega hægt. Líkama mínum gæti ekki verið meira sama um áfengisneyslu mína, þó að lifrin sé örugglega fegin að fá verðskuldaða hvíld. Félagslegi þátturinn er erfiðari viðfangs þar sem flestir fundir vina minna hefjast á því fallega hljóði sem heyrist þegar dós er opnuð. Ég á eflaust eftir að stara niðurlútur á glitrandi glös félaga minna næstu mánuði og velta vöngum yfir ástæðum sjálfspíningarhvatarinnar. Meira ruglið. Fyrir utan augljósa líkamlega, andlega og fjárhagslega kosti er þetta heimskulegasta ákvörðun sem ég hef tekið og næstu fimm mánuðum eyði ég í helvíti. Sjáumst þar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Atli Fannar Bjarkason Mest lesið Ertu nú alveg viss um að hafa læst hurðinni? Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun Ómeðvituð vörn í orðræðu – þegar vald ver sjálft sig Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald Skoðun Verðmætatap auðlindagjaldanna – Hverra og hvernig? Haukur V. Alfreðsson Skoðun Málþóf á kostnað ungs fólks Lísa Margrét Gunnarsdóttir Skoðun Úrsúla og öryggismálin - Stöndum gegn vígvæðingu Guttormur Þorsteinsson Skoðun Verið öll hjartanlega velkomin á Unglingalandsmót á Egilsstöðum Jónína Brynjólfsdóttir Skoðun Sanngirni að brenna 230 milljarða króna? Björn Leví Gunnarsson Skoðun 48 daga blekking: Loforð sem leiðir til lögbrota? Svanur Guðmundsson Skoðun
Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun
Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald Skoðun
Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun
Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald Skoðun