Hjá tengdó á aðfangadagskvöld 1. nóvember 2011 00:01 „Eftirminnileg jól eru jólin sem ég bað konunnar minnar. Það var bæði fallegt og fyndið." „
Ég er aðeins byrjaður að undirbúa jólin með fjölskyldunni, skreyta og þess háttar. Svo er ég að gíra mig upp í að fara út og skreyta trén fyrir utan húsið," segir Sjonni Brink tónlistarmaður sem gefur út plötu fyrir þessi jól, 10 ný íslensk lög, eftir hann sjálfan og Guðmund Jónsson. „Ég verð reyndar að viðurkenna að ég er mjög spenntur fyrir þessi jól, hlakka mikið til." Sjonni Brink og Ívar Guðmundsson útvarpsmaður á Bylgjunni. Þegar talið berst að aðfangadagskvöldi segir Sjonni: „Ég verð heima hjá tengdamömmu minni á aðfangadagskvöld með fjölskyldunni." „Það verður margrétta eins og alltaf, sumir borða rjúpur og aðrir hamborgarahrygg. Jólin eru frekar hefðbundin og heimilsleg hjá okkur. Við reynum að hitta fjölskyldumeðlimi og spila." Sjonni og Gummi Jóns. „10 ný íslensk lög eftir mig og Gumma Jóns" „Þessa plötu vann ég með Gumma Jóns úr Sálinni og eru þetta 10 ný íslensk lög eftir mig og Gumma. Kveikjan að samstarfi okkar var þegar ég söng lag eftir hann í Laugardagslögunum fyrir tveimur árum síðan og ég stökk á tækifærið á að vinna með honum." „Þetta hefur verið löng fæðing en er loks að verða að veruleika. Platan verður seld í Hagkaupum og svo auðvitað þar sem ég kem til með að troða upp á næstu misserum."„Hægt er að fylgjast með því hvar ég er að spila og kynna plötuna inn á facebook undir Sjonni Brink," segir hann að lokum.-elly@365.is
Jólafréttir Mest lesið Jólalag dagsins: Magni syngur Þegar jólin koma Jól Heimagerður brjóstsykur Jól Bo Hall: Þakklátur fyrir öll jól Jól Tilhlökkun á hverjum degi Jólin Jóladagatal Vísis: Klukkan er sex Jólin Hjá mömmu eða pabba á jólunum? Jólin Piparkökur með brjóstsykri Jólin Matarstell fyrir fjóra (16 stykki) - Tilboð 3.493 kr. (verð áður 4.990 kr.) Jólin Deila með sér hollustunni Jól Unaðssætar uppskriftir frá Ingu Elsu Jólin