Komið í veg fyrir kappakstur veiðimanna að Árbæjarhyl 24. maí 2012 20:55 Árbæjarhylurinn sést hér á þessu korti sem gefið var út af Orkuveitu Reykjavíkur.
Stangaveiðifélagið gerir breytingar á veiðisvæðum Elliðaánna í sumar til að koma í veg fyrir kappakstur veiðimanna að Árbæjarhyl, sem hefur hingað til verið á frísvæði. Á vef SVFR kemur fram að Árbæjarhylur muni nú falla undir veiðisvæði II. Þetta þýðir í raun að veiðisvæði II sem er frá Ullarfossi að Neðri-Móhyl mun nú einnig fá Árbæjarhylinn. „Ástæðan fyrir breytingunni er helst sú að Árbæjarhylur hefur hin síðari ár verið einn allra besti veiðistaður Elliðaánna, en sérstaklega er hylurinn frábær fluguveiðistaður," segir á vef SVFR. „Því hefur það verið raunin í seinni tíð að nokkurs konar kappakstur hefur átt sér stað við að koma fyrstur að hylnum í morgunsárið - þar sem að hylurinn hefur verið frísvæði." Vonast Stangaveiðifélagið til að koma í veg fyrir kappaksturinn með þessum breytingum. „Það er því liðin tíð að þeir sem eiga hraðskreiðasta bílinn fái að kasta fyrstir í Árbæjarhyl á morgnana," segir á vef SVFR.
Stangveiði Mest lesið Veiddu vel á léttklæddar flugur Veiði Gæsaveiðin fer rólega af stað Veiði Veiðiævintýri í Norðlingafljóti með Ólafi Veiði 30 laxa dagur í Jöklu Veiði Fyrsti laxinn kominn úr Eystri Rangá Veiði Sá stærsti sem hefur veiðst í sumar Veiði Þar liggja drekarnir í djúpinu Veiði Töluvert af sjóbirting við Hraun í Ölfusi Veiði Þrjár komnar yfir 1.000 laxa Veiði Svona nærðu árangri í Þingvallavatni Veiði