Fín veiði í Korpu og laxinn vel dreifður um ána 24. júlí 2012 12:40 Tekist á við lax í Símastreng í Korpu. Mynd / Júlíus Ásbjörnsson
Alls eru 100 laxar komnir á land í Korpu. Veiðin hefur verið mjög góð það sem af er sumri og er fiskurinn vel dreifður um ána samkvæmt upplýsingum frá veiðivörðum. "Gaman er frá því að segja að lax er búinn að veiðast á flest öllum merktum veiðistöðum árinnar en það má þakka þeim breytingum sem gerðar voru fyrir ofan fossinn í vor en þær auðvelda laxinum að ganga hann," segir í tilkynningu frá veiðivörðum. "Mikið er ennþá af laxi í Blikstaðakrónni og eru laxar og sjóbirtingar að ganga inn á hverju flóði. Maðkurinn er skæðastur en flugan hefur verið gefa vel þeim sem hana reyna og þá helst smáflugur og micro-keilutúpur. Til þess að ná góðum árangri í Korpu verður að fara varlega og munið eitt, það sem styggir laxinn mest er skugginn af sjálfum þér," segir í tilkynningunni. Í fyrra veiddust 210 laxar í Korpu samkvæmt vef Landssambands veiðifélaga. Frá árinu 1974 til 2008 veiddust að meðaltali 296 laxar í ánni. Mest veiddist sumarið 1988 en þá komu 709 laxar á land. Minnsta veiðin var árið 1980 þegar 110 laxar veiddust.trausti@frettabladid.is
Stangveiði Mest lesið Lækkað verð á vatnasvæði Lýsu Veiði Náði 12 punda urriða í Kleifarvatni Veiði Vikulegar veiðitölur heldur lágar víðast hvar Veiði Allar lokatölur komnar úr laxveiðiánum Veiði Urriðaveiðin að toppa á Þingvöllum Veiði Flott opnun í Brunná og Sandá Veiði Ertu þú að henda laxi á hverju vori? Veiði Hrun í smálaxastofninum er ekki einsdæmi á Íslandi Veiði Fimmta framboðið til stjórnar SVFR Veiði Barátta við stórfisk í Brunná Veiði