Íslenski boltinn

Sparkaði ekki í bolta í rúma tvo mánuði en það dugði ekki til

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Margrét Lára Viðarsdóttir.
Margrét Lára Viðarsdóttir. Mynd/Daníel
Margrét Lára Viðarsdóttir, aðalmarkaskorari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, verður ekki með í lokaleikjum íslenska liðsins í undankeppni EM 2013. Þetta eru leikir á móti Norður-Írlandi og Noregi og þar geta íslensku stelpurnar tryggt sér sæti í úrslitakeppninni sem fer fram í Svíþjóð á næsta ári. Það er mikið áfall fyrir landsliðið að vera án markadrottningarinnar í þessum mikilvægu leikjum.

Margrét Lára samdi nýverið við Kristianstad í Svíþjóð og fór full bjartsýni til Svíþjóðar enda ekki búin að sparka í bolta í tvo mánuði. Meiðslin langþráðu sem hafa plagað hana undanfarin ár voru þó fljót að taka sig upp.

„Hún var í sumar að hreyfa sig á annan hátt heldur en fótbolta. Hún var að hjóla mikið, synda og að styrkja sig. Við vonuðumst til að hún myndi ná sér af þessum meiðslum og verða betri. Hún fór síðan til Kristianstad og markmiðið hennar var að spila á móti Malmö," sagði Sigurður Ragnar.

„Hún fór á tvær knattspyrnuæfingar fyrir þann leik en fékk strax aftur gömlu verkina. Hún var mjög slæm og gat ekki komið í þessi verkefni til þess að beita sér að einhverju viti," sagði landsliðsþjálfarinn Sigurður Ragnar Eyjólfsson á blaðamannafundi í dag.

Margrét Lára er búin að skora 66 mörk í 82 A-landsleikjum þar af 8 mörk í 8 leikjum liðsins í undankeppni EM.

„Þetta er búið að vera mjög erfitt fyrir hana í langan tíma en samt er ótrúlegt hvað hún hefur náð að spila þrátt fyrir þessi meiðsli. Hún var markahæst í Svíþjóð með þessi meiðsli og spilaði fyrir Potsdam, eitt besta félagslið í Evrópu, með þessi meiðsli," sagði Sigurður Ragnar.

„Maður getur bara ímyndað sér hvernig hún verður ef hún nær sér góðri af þessum meiðslum sem hún vonandi gerir. Hún ætlar að leita sér frekari lækninga og jafnvel fara í aðgerð í framhaldinu. Það er ekki búið að greina þetta þannig að við vitum ekki alveg með hana," sagði Sigurður Ragnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×