Hún segir veitingahús gangast undir strangt ferli og þurfa að uppfylla marga þætti til að öðlast vottun norræna Svansmerkisins.
"Við þurftum þó litlu að breyta enda höfðum við Svansvottun að leiðarljósi þegar við hófum rekstur og vorum vel búin undir að takast á við innleiðingarferlið. Ferlið gekk vel fyrir sig og mín tilfinning er að við munum eiga auðvelt með að framfylgja ferlum vottunarinnar í framhaldinu," segir Guðríður sem er strax farin að finna fyrir stórum sparnaði í mörgum þáttum rekstursins.
"Á vínseðli bjóðum við gómsæt, lífræn vín og bjór og á matseðli ríkulegt úrval grænmetisrétta. Aðrir réttir á matseðli innihalda margir hverjir ferskt og lífrænt hráefni beint frá bónda og eggin eru til að mynda úr frjálsum og hamingjusömum hænum. Þá eru öll hreinsiefni til daglegra þrifa með Svansvottun og á Nauthóli er mjög þróað flokkunarkerfi sorps sem tryggir lágmarksáhrif á umhverfið," útskýrir Guðríður.
Hún segir starfsfólk Nauthóls upplýst um alla ferla sem viðkoma Svansvottuninni og meðvitað um að flokka rusl samviskulega, slökkva óþörf ljós, fara sparlega með rafmagn og skrúfa fyrir rennsli undir stéttum þegar ekki er frost og snjór. Þá hjálpi til að allur tækjabúnaður var keyptur nýr og sparneytinn.
"Hér leggjast allir á eitt og hafa gaman af enda góð tilfinning að hlúa að umhverfi okkar og bjóða aðeins það besta, grænasta og hollasta úr náttúrunni. Með Svansvottun tökum við samfélagslega ábyrgð og skref í átt að eðlilegri framtíðarþróun, ásamt sjálfsagðri skyldu gagnvart umhverfinu, starfsfólki okkar og viðskiptavinum," segir Guðríður.
Gestir Nauthóls munu verða varir við Svansvottun á matseðli og víðar í húsinu og er von Guðríðar að Svansvottun Nauthóls verði öðrum veitingahúsum til eftirbreytni.
"Við erum stolt af því að fá virta vottun Svansmerkisins á Nauthól og hlökkum til að taka á móti gestum sem vilja njóta veitinga á umhverfisvænum veitingastað í fagurri náttúru borgarinnar," segir Guðríður.
Nauthóll er á Nauthólsvegi 106. Heimasíða www.nautholl.is og www.facebook.com/nautholl.