Sautján ár liðin frá snjóflóðinu á Flateyri BBI skrifar 26. október 2012 13:49 Frá björgunaraðgerðum á Flateyri í október árið 1995. Mynd/GVA
Í dag eru 17 ár síðan snjóflóðið á Flateyri féll yfir bæinn. Snjóflóðið skall á íbúðarhúsum bæjarins þegar 45 manns voru þar inni. Ríflega helmingur þeirra lifði af en 20 manns létu lífið. Húsin sem lentu undir flóðinu höfðu áður verið talin utan hættusvæðis, en mikið fárviðri var á Vestfjörðum þennan dag. „Maður hugsar til þessa dags með þá döpru staðreynd í huga að fjöldi fólks fórst og margir eiga um sárt að binda," segir Eiríkur Finnur Greipsson, íbúi á Flateyri, í samtali við fréttavef Bæjarins Besta á Ísafirði. Eiríkur var einn þeirra sem komst lífs af í snjóflóðinu. „Húsið okkar fór í flóðinu, en við hjónin vorum heima með syni okkar tvo. Okkur var bjargað úr húsinu rúmum klukkutíma eftir að flóðið féll," segir Eiríkur. Á þessum degi hverfur hugur fólksins á Flateyri iðulega til þessara aburða. Eiríkur segir að það sé ekki aðeins söknuður og tregi sem sé Flateyringum ofarlega í huga á þessum degi heldur einnig þakklæti. „Okkur var sýnd mikil ástúð og umhyggja í kjölfar þessa atburðar, bæði úr nágrannabyggðum og frá landsmönnum öllum, sem sýndu mikinn samhug," segir hann.
Snjóflóðin á Flateyri 1995 Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira