Grindvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Stjörnunnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. nóvember 2012 20:52 Þorleifur Ólafsson. Mynd/Valli
Íslandsmeistarar Grindavíkur stöðu þriggja leikja sigurgöngu Stjörnunnar i Dominosdeild karla í kvöld með því að vinna Garðbæinga 90-86 í spennuleik í Röstinni í Grindavík. Grindavík og Stjarnan eru því jöfn að stigum í toppbaráttunni þegar sjö umferðir eru búnar en bæði liðin hafa náð í 10 stig af 14 mögulegum. Aaron Broussard skoraði 24 stig fyrir Grindavík í kvöld og Þorleifur Ólafsson var frábær með 19 stig og 4 stoðsendingar. Sigurður Gunnar Þorsteinsson bætti síðan við 16 stigum. Brian Mills var með 27 stig og 11 fráköst hjá Stjörnunni og Justin Shouse bætti við 15 stigum og 14 stoðsendingum. Grindvíkingar voru skrefinu á undan í upphafi leiks en Stjörnumenn hleyptu þeim ekki langt frá sér og voru síðan einu stigi yfir, 26-25, eftir mjög jafnan fyrsta leikhluta. Það tók Stjörnuna rúmar fjórar mínútur að skora fyrstu stigin sín í öðrum leikhluta en Grindavík náði á sama tíma aðeins að skora fjögur stig og var því bara 29-26 yfir þrátt fyrir stigaleysi gestanna. Grindavíkurliðið var engu að síður komið með frumkvæðið í leiknum og leiddi í framhaldinu með sjö stigum í hálfleik, 48-41, eftir að hafa unnið annan leikhlutann 23-15. Grindvík var tíu stigum yfir í upphafi þriðja leikhlutans 53-43, en Stjarnan vann síðustu átta mínútur hans 20-9 og var 63-62 yfir fyrir lokaleikhlutann. Grindvíkingar skoruðu fimm fyrstu stig fjórða leikhlutans og voru með frumkvæðið það sem eftir var leiksins. Stjörnumenn voru þó aldrei langt undan og minnkuðu muninn í tvö stig þegar 11 sekúndur voru eftir. Samuel Zeglinski innsiglaði sigurinn með því að setja niður tvö víti.Grindavík-Stjarnan 90-86 (25-26, 23-15, 14-22, 28-23)Grindavík: Aaron Broussard 24/7 fráköst, Þorleifur Ólafsson 19/5 fráköst, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 16/6 fráköst, Samuel Zeglinski 14/5 fráköst/8 stoðsendingar, Jóhann Árni Ólafsson 11, Ómar Örn Sævarsson 5/12 fráköst, Davíð Ingi Bustion 1.Stjarnan: Brian Mills 27/11 fráköst, Dagur Kár Jónsson 15/6 fráköst, Justin Shouse 15/6 fráköst/14 stoðsendingar, Marvin Valdimarsson 14/7 fráköst, Fannar Freyr Helgason 8/9 fráköst, Kjartan Atli Kjartansson 4/4 fráköst, Jovan Zdravevski 3/4 fráköst.
Dominos-deild karla Mest lesið Viktor Gísli kláraði háskólanám með atvinnumennskunni Handbolti Allir hræðist Gísla Þorgeir: „Þekktasta nafnið í handboltaheiminum“ Handbolti Sjáðu mörkin úr Bestu þar sem Gylfi Þór fór mikinn og glæsimark var skorað Íslenski boltinn Aldrei séð föður sinn jafn glaðan og sáttan í einu og sama verkefninu Íslenski boltinn OKC Thunder NBA-meistari Sport Foreldrar Wirtz fá 1,4 milljarða vegna kaupa Liverpool Enski boltinn Fyrirmyndarnemanda og fótboltastjörnu vísað úr landi Fótbolti Máluðu yfir andlit „svikarans“ Fótbolti OKC lyftir titlinum: „Að vita að þetta var allt þess virði er einstakt“ Sport Hitaði upp fyrir EM með stórleik: Vildi ná þrennunni en þjálfarinn sagði nei Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum „Ætluðum ekki að leyfa þeim að fagna titli á okkar heimavelli“ Pacers knúðu fram oddaleik Íslensku stelpurnar unnu silfrið á Norðurlandamótinu Fór frá bróður og Keflavík: „Þarf ekkert litla bróður sinn með sér í liði“ Buss fjölskyldan selur Los Angeles Lakers fyrir metupphæð Hæsta kona heims lék sinn fyrsta landsleik Rúnar Birgir á EuroBasket Dolezaj til liðs við nýliðana Álftnesingar krækja í lykilmann Keflavíkur ÍR-ingar næla sér í leikmann úr Íslandsmeistaraliði Stjörnunnar Hætta í miðju úrslitaeinvígi og enginn meistari krýndur Dóttirin talar íslensku: Í úrslitum NBA og meira tengd Íslandi en áður Þrumuleikur frá Jalen Williams og Thunder einum sigri frá titlinum Semja við íslenska kjarnann í liði Íslandsmeistaranna Ótrúleg endurkoma og allt jafnt í úrslitaeinvíginu Hin stórstjarna Celtics þurfti einnig að fara undir hnífinn Áhorfið minnkaði um 55 prósent eftir að Caitlin Clark meiddist Sjá meira