Grindavík og Þór upp að hlið Snæfells á toppnum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 7. desember 2012 20:41 Grindvíkingar fögnuðu Íslandsmeistaratitlinum í Þorlákshöfn síðastliðið vor. Mynd/Daníel
Grindavík og Þór Þorlákshöfn unnu góða sigra í leikjum sínum gegn KFÍ og Keflavík í Dominos's-deild karla í körfuknattleik í kvöld. Íslandsmeistarar Grindavíkur tóku frumkvæðið strax í fyrsta leikhluta í Röstinni gegn KFÍ. Liðið leiddi að honum loknum með níu stigum en munurinn var sextán sig í hálfleik, 57-41. Gestunum frá Ísafirði gekk illa að brúa bilið í síðari hálfleik og sigur heimamanna niðurstaðan, 110-82. Aaron Broussard var besti maður vallarins. Broussard skoraði 28 stig, var frákastahæstur með átta fráköst auk þess að stela fimm boltum. Hjá gestunum var Damier Pitts allt í öllu. Kaninn skoraði 32 stig auk þess að gefa tíu stoðsendingar og taka átta fráköst. Þórsarar upp að hlið Grindvíkinga og SnæfellingaKeflvíkingar byrjuðu betur gegn Þórsurum í Þorlákshöfn. Liðið leiddi að loknum fyrsta leikhluta 30-24 en liðsmenn Benedikts Guðmundssonar voru beittari í öðrum leikhluta. Þórsarar leiddu í hálfleik 54-48. Vörn heimamanna small í síðari hálfleik en Keflvíkingar skoruðu aðeins 15 stig í þriðja leikhluta. Forysta Þórsarar var í kjölfarið væn og sigurinn öruggur, 108-82. Benjamin Curtis Smith var bestur hjá heimamönnum. Smiths skoraði 24 stig, tók 12 fráköst og átti 8 stoðsendingar. Michael Craion skoraði 23 stig fyrir gestina og tók 13 fráköst. Með sigrum sínum komust Grindavík og Þór upp að hlið Snæfells í efsta sæti deildarinnar. Öll lið hafa unnið sjö leik en tapað tveimur. Keflvíkingar sitja áfram í 5. sæti deildarinnar með fimm sigra úr níu leikjum.
Dominos-deild karla Mest lesið Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Fleiri fréttir Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Allt annað að sjá Helenu í dag: „Gríðarlegur kraftur í henni“ Uppgjörið: Ármann - Valur 78-89 | Valskonur aftur á sigurbraut Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Uppgjörið: KR-Njarðvík 97-115 | Fyrsta tap KR-inga gegn Íslandsmeisturunum Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Tryggvi Snær og félagar aftur á sigurbraut Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Líktu Álftanesi við Bayern München Hafði betur í spænska Íslendingaslagnum Óvænt truflun í Njarðvík „Náðum að auka tempóið í seinni hálfleik“ „Viðhorf leikmanna angrar mig“ Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Uppgjörið Grindavík - KR 80-91 | KR jók hraðann í seinni hálfleik og innbyrti sigur „Erfitt að koma í þetta hús og sækja sigur“ Reikna með Kane en vita ekki hvenær „Menn eru að reyna að vera með ábyrgan rekstur“ 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ „Þetta eru alvöru hermenn“ „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ „Annars er mér bara fokking drullusama“ Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Sjá meira