Körfubolti

Wade í eins leiks bann fyrir að sparka í pung mótherja

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dwyane Wade missir af leik Miami Heat í kvöld en yfirmenn NBA-deildarinnar í körfubolta hafa ákveðið að dæma leikmanninn í ensk leiks bann. Ástæðan er þó af óvenjulegri gerðinni.

Dwyane Wade varð uppvís að því að sparka í pung Ramon Sessions hjá Charlotte Bobcats í leik liðanna á dögunum. Sessions braut á Wade sem virtist í framhaldinu sparka vísvitandi í viðkvæman stað hjá Sessions.

„Ég er langt frá því að vera grófur leikmaður og það var aldrei ætlun mín að sparka í Ramon Sessions. Ég var bara að bregðast við því þegar hann braut á mér," skrifaði Dwyane Wade inn á twitter-síðu sína. Það er hægt að sjá atvikið hér fyrir neðan.

Dwyane Wade skoraði 29 stig í leiknum sem Miami vann 105-92. Wade tekur leikbannið út í kvöld þegar liðið heimsækir Detroit Pistons. Atvikið gerðist í fjórða leikhlutanum.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×