Fjandinn hirði paradís 22. janúar 2012 08:00
Bíó. The Descendants. Leikstjórn: Alexander Payne. Leikarar: George Clooney, Shailene Woodley, Judy Greer, Beau Bridges, Matthew Lillard, Robert Forster, Amara Miller, Nick Krause. George Clooney leikur Matt King, lögfræðing á Hawaii sem hefur vanrækt dætur sínar tvær. Eiginkona hans lendir í bátaslysi og fer í dauðadá og því þarf King að hysja upp um sig og annast börnin sín. En King kann illa á pabbahlutverkið og dæturnar gera honum það ekki beinlínis auðveldara fyrir. The Descendants er grátbrosleg vandamálamynd þar sem mikið mæðir á aðalleikaranum. Clooney er sterkur leikari og fyrir vikið verður Matt King flókin og spennandi persóna. Alexander Payne er frábær leikstjóri í stöðugum vexti og hér toppar hann öll fyrri verk. Senan þar sem eldri dóttirin öskrar í kafi sundlaugar er tilfinningaleg kjarnorkusprengja, án þess þó að vera tilgerðarleg, en sorg í kvikmyndum getur mjög auðveldlega umturnast í sorgarklám. Payne er þó óhræddur við að létta okkur lundina annað slagið, og sum atriðanna eru sprenghlægileg. Myndin er áferðarfögur og Hawaii fær að njóta sín, en áhorfendur hafa eflaust ekki oft fengið að sjá heila mynd sem gerist þar og tengja staðinn eflaust helst við sumarleyfi á exótískum slóðum en ekki erjur, sorg og yfirvofandi dauða. King gefur allavega lítið fyrir paradísarstimpilinn og segir hana mega fara fjandans til. Tónlist myndarinnar er sköpuð af heimamönnum og eykur það heildaráhrifin til muna. Hvern hefði grunað að þessi vinsæli ferðamannastaður ætti sér menningarlegar rætur, mun eldri en allar staðalímyndir um brimbretti og kókoshnetubikiní? Það er eitthvað ákaflega fallegt og einlægt við The Descendants. Gamla tuggan um að lífið sé hverfult á alltaf við, en Payne heldur því fram að aldrei sé neitt of seint. Hvort sem þú þarft að byrja að ala upp börnin þín, segja deyjandi ástvini eitthvað eða að læra að meta fegurð umfram fé. Niðurstaða: Ímynd Hawaii verður aldrei söm í mínum augum, en nú langar mig ennþá meira að fara þangað.
Mest lesið Vala Grand og Brynjólfur flytja á Skagann Lífið Árin hjá Spotify ævintýri líkust Lífið Fyrst skíði og nú golf Lífið Rétturinn sem fær konurnar niður á hnén Lífið „Takk Hreyfill frá Vorsabæ“ Lífið Brady og Bloom sagðir sólgnir í Sweeney Lífið Drakk ógeðslega illa og hætti eftir blindafyllerí Lífið Djöfullinn klæðist Prada á ný Bíó og sjónvarp Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Tónlist Einar fékk meira hár en Baldur Lífið Fleiri fréttir Neistalaus trekantur leiðinlega fólksins Er Stalín listgagnrýnandi í Hörpu núna? Wardruna í vanda – þegar dulúðin náði ekki flugi Tom Cruise hrasar á síðasta snúning Messan sem var ekki tímamótaverk – en mig langaði samt til að gráta Sjá meira