Hreinskilni einhleypa fólksins 28. janúar 2012 06:00 Einhleypa fólkið. Hjörð án leiðtoga. Einmana úlfar og úlfynjur sem ráfa um með veiðihárin missýnileg. Þegar einhleypa fólkið brýnir klærnar beitir það oft flóknum brögðum til fella bráð sína. Sumt fólk villir á sér heimildir, lýgur eða spinnur upp sögur sem bráðin fellur kylliflöt fyrir og gerir eftirleikinn auðveldan. Svik hafa hins vegar afleiðingar og oft endar saklaus bráðin með þung lóð í hjarta sínu. Hreinskilni er vanmetið vopn á blóðugum vígvelli einhleypa fólksins. Ef fólk væri hreinskilið við hvert annað væri hægt að forðast alls kyns andlega árekstra og koma í veg fyrir símtöl sem fólk vill ekki svara, rykfallnar vinabeiðnir og vandræðaleg samtöl í stórmörkuðum. Allir eru að rembast við að brenna fitu af bumbunni, en hugsa ekki um ekki fituna sem safnast óhindrað upp á aumingja sálartetrinu — því eina sem heldur okkur gangandi, fyrir utan flóknasta mekanisma allra tíma sem mannslíkaminn er. Samskipti þurfa ekki að vera flókin. Það er vissulega erfiðara að vera hreinskilinn, en það margborgar sig. Eins og að leggja peninga inn í banka á Íslandi. Djók. En þetta er rosalega einfalt: Ekki biðja um símanúmer nema þú ætlir að hringja í það, ekki segja eitt og meina annað. Ekki ljúga, asninn þinn, því það er ljótt. Ef þú vilt sofa hjá viðkomandi án þess að skuldbinda þig til næstu ára skaltu gera foreldra þína stolta og hafa kjark til að segja það: „Ég myndi gjarnan vilja sofa hjá þér og það er harla ólíklegt að ég hafi samband aftur í þeim tilgangi að stofna með þér fjölskyldu". (Þótt það sé nauðsynlegt að vera ekki með dónaskap er reyndar algjör óþarfi að hljóma eins og einhver sem dó úr elli fyrir hundrað árum). Ef þú færð vökva í andlitið geturðu huggað þig við það að hann þornar, en það kostar oft alls kyns vesen að losa sig við lamandi þyngsli af sálinni. Að lóða saman brotið hjarta getur verið mikil og erfið vinna — vinna sem krefst þess í mörgum tilvikum að fólk gangi fram af sér í neyslu á feitum skyndibita og heilsuspillandi veigum. Það eru leiðinleg hlutskipti. Þá getur samviskubit verið jafn mikið vesen. Ef ekki meira. Ef þú færð hins vegar jákvætt svar er búið að slá alla sjáanlega varnagla. Væntingarnar eru engar, óttinn ekki til staðar — algjört frelsi blasir við. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Atli Fannar Bjarkason Bakþankar Skoðanir Mest lesið Slaufun, skautun, skömmun Örn Bárður Jónsson Skoðun Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun NEI! Atlaga að lýðræði og svipting kosningaréttar Magnús Jónsson Skoðun Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun Verðbólgan er stærsti einstaki uppruni hagnaðar á Íslandi Egill Almar Ágústsson Skoðun Að skilja, eða skilja ekki, umræðuna Lúðvík Bergvinsson Skoðun Grein fyrir óákveðna kjósendur og nei-sinna Magnea Marinósdóttir Skoðun „Vilja til að ganga í Evrópusambandið“ Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Fullveldi þjóðar og frelsi einstaklings Pétur B. Sveinsson Skoðun Er Marta Kos einnig að plata?.. en það má ekki plata Júlíus Valsson Skoðun
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun
Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun
Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun