Lækhóran - listin að höfða til allra Bergsteinn Sigurðsson skrifar 1. desember 2012 08:00 Lækhóran I Eineltisseggurinn Egill "Gillzenegger" Einarsson er þekktur fyrir framlag sitt til klámvæðingar, staðalímynda og botnlausrar kvenfyrirlitningar. "Grín" hans endurspeglar fasíska lífssýn þar sem þeir sem eru "öðruvísi" eru álitnir úrhrök. Þeir sem andæfa fá að finna fyrir því. Um það vitnar bloggfærsla þar sem Egill hótaði að láta nauðga fjórum nafngreindum femínistum sem höfðu gagnrýnt hann. Í ljósi forsögunnar þurfti því ekki að koma á óvart þegar Egill var kærður fyrir nauðgun í fyrra. Það var í raun aðeins tímaspursmál. Eftir mikið volk í kerfinu var ákveðið að gefa út ekki ákæru í málinu. Það þýðir hins vegar ekki að hann sé saklaus , einungis að ekki þóttu nógu miklar líkur á því að ákæra myndi leiða til sakfellingar. Þetta mál telst því óupplýst. Og enn finnst Agli hann eiga erindi upp á dekk og fjölmiðlar spila með. Á dögunum var hann í drottningarviðtali hjá vinsælu unglingablaði og hélt þar áfram að drulla yfir femínista og aðra sem hafa vogað sér að gagnrýna hann, enda ganga hugmyndir hans um tjáningarfrelsi aðeins í eina átt. Egill er óforbetranlegur mannhatari og ekki bara slæm fyrirmynd fyrir óharnaða unglinga heldur beinlínis hættuleg. Það er ekki lengur hægt að líða að svona öfl skáki í skjóli tjáningarfrelsisins og misnoti það til að breiða út mannfyrirlitningu sína. Það er löngu orðið tímabært að spyrna fæti við þessari hrollvekjandi helstefnu. Lækhóran II Skemmtikrafturinn Egill Einarsson hefur undanfarið ár verið fórnarlamb einhverra svívirðilegustu ofsókna sem átt hafa sér stað hér á landi. Femínistar, eða ætti maður kannski að segja femínasistar, hafa fellt grímuna og heimta blóð. Ekki fer á milli mála að þar leikur sært stolt lykilhlutverk. Í gervi alteregósins Gillzenegger hefur Egill á liðnum misserum dregið þessa öfgasellu sundur og saman í póstmódernísku háði í anda Hugleiks Dagssonar. Egill hefur vissulega misstigið sig í gegnum tíðina, til dæmis í gamalli bloggfærslu þar sem gálgahúmorinn fór yfir strikið. Það er til marks um heiftina að þrátt fyrir að hafa fjarlægt umrædda færslu og beðist ítrekað afsökunar nota femínistar hvert tækifæri til að rifja hana upp og núa honum henni um nasir. Í ljósi þessa þurfa viðbrögðin við því þegar stúlka kærði Egil fyrir nauðgun ekki að koma á óvart. Heykvíslalýðurinn hafði þar fengið staðfestingu fyrir sannfæringu sinni. Skiptir þá engu máli að þrátt fyrir að hafa rannsakað málið í drep sá saksóknari ekki fót fyrir ákæru. Femínistar linna ekki látum fyrr en maðurinn hefur verið svo gott sem hrakinn úr mannlegu samfélagi. Það er ekki lengur hægt að líða að svona öfl skáki í skjóli réttlætiskenndar sinnar og grafi undan tjáningarfrelsinu. Það er löngu orðið tímabært að spyrna fæti við þessari hrollvekjandi helstefnu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bergsteinn Sigurðsson Mest lesið Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson Skoðun Kristján Loftsson og stalínistarnir Arngrímur Stefánsson Skoðun Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson Skoðun Ofveiðin í ESB fyrir 500 árum Sigurjón Þórðarson Skoðun Að þýða texta er ekki það sama og að búa til námsefni Bogi Ragnarsson Skoðun Lögreglan auglýsir eftir vilja löggjafans Elías Blöndal Guðjónsson Skoðun Almyrkvinn 2026 – besta áhorfssvæðið gæti verið heima hjá þér Dagbjartur Kr. Brynjarsson Skoðun Getum við gert betur fyrir íslensk heimili? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson Skoðun Pílagrímaganga fyrir líkama og sál Sr. Arna Grétarsdóttir Skoðun
Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson Skoðun
Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson Skoðun
Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson Skoðun
Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson Skoðun