Hægfara hrotti Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 6. desember 2012 13:00
Bíó. Killing Them Softly. Leikstjórn: Andrew Dominik. Leikarar: Brad Pitt, James Gandolfini, Ray Liotta, Richard Jenkins, Scoot McNairy, Ben Mendelsohn, Sam Shepard. Þrír smákrimmar í Suðurríkjum Bandaríkjanna ákveða að ræna ólöglegt spilavíti og klína sökinni á saklausan mann. Gjörningurinn skapar mikla ólgu innan bófasamfélagsins og leigumorðinginn Jackie Cogan (Brad Pitt) er kallaður til. Atburðir myndarinnar eiga sér stað í miðri kosningabaráttu Baracks Obama og Johns McCain, og úr hverju horni heyrist fjas frambjóðendanna um efnahagsástandið, annað hvort í útvarpi eða sjónvarpi. Þarna vill leikstjórinn eflaust benda áhorfandanum á líkindi hins raunverulega bandaríska hagkerfis og hagkerfis glæpamanna, en allir vilja fá sitt og svífast einskis til að fá það. Til að byrja með er þetta sniðugt en fer svo að trufla gang sögunnar. Killing Them Softly er þó óhrædd við að gleyma sér í augnablikinu og reglulega fær sögufléttan hvíld á meðan dvalið er við undarlegt samtal eða smáatriði. Lengst gengur leikstjórinn í atriði þar sem persóna James Gandolfini, andstyggileg fyllibytta og hórkarl, fer á langdregið en áhugavert trúnó með Jackie. Líklega eru það þessi smáatriði, ásamt glæsilegu stórskotaliði leikara, sem hífa myndina upp fyrir meðalmennskuna, en sem glæpamynd er Killing Me Softly ekki ýkja merkileg. Ofbeldisatriðin eru yfirgengileg og alls ekki fyrir viðkvæma, en nokkuð vel útfærð og líklega það eftirminnilegasta við myndina. Niðurstaða: Skrýtinn, hægfara og hrottalegur krimmi, en skilur lítið eftir sig.
Gagnrýni Mest lesið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Lífið Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Lífið samstarf Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið Fleiri fréttir Kulnaður Köngulóarmaður skýtur klístruðum púðurskotum Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Sjá meira