Íslenski boltinn

Stelpurnar spila við Svía 6. apríl

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sara Björk Gunnarsdóttir.
Sara Björk Gunnarsdóttir. Mynd/Nordic Photos/Getty
Knattspyrnusambönd Íslands og Svíþjóðar hafa komist að samkomulagi um að kvennalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik ytra 6. apríl næstkomandi. Leikið verður í Växjö en á þeim velli mun íslenska liðið leika tvo af þremur leikjum sínum í riðlakeppni úrslitakeppni EM í sumar. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ.

Ísland og Svíþjóð hafa mæst ellefu sinnum hjá A landsliðum kvenna og hefur íslenska liðið einungis farið með sigur af hólmi, einu sinni hefur orðið jafntefli en Svíar hafa haft yfirhöndina níu sinnum. Eini sigurleikur Íslendinga kom á Algarvemótinu árið 2011.

Þá eru ráðgerðir a.m.k. sex leikir hjá íslenska liðinu fyrir úrslitakeppnina í sumar. Fjórir leikir verða leiknir á Algarvemótinu í mars, þar sem Svíar verða einnig á meðal mótherjanna, ásamt því að leikið verður við Skota í júní. Fyrsti leikur Íslands í úrslitakeppninni er svo gegn Noregi, 11. júlí.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×