Sigurður Pálsson kennir fluguhnýtingar 31. janúar 2013 06:00 Sigurður Pálsson með brot af flugusafni sínu. Mynd / Stefán
Hinn kunni veiðimaður og fluguhnýtari Sigurður Pálsson verður enn á ný með hnýtingarkvöld fyrir félagsmenn Stangaveiðifélags Reykjavíkur (SVFR). Sigurður er meðal annars þekktur fyrir að vera höfundur Flæðamúsarinnar og Dýrbítsins sem báðar eru frábærar veiðiflugur. Félagsmenn SVFR eru að sjálfsögðu velkomnir og mega þeir taka með sér gesti að því er segir á vefsíðu SVFR. Sigurður verður með kennslu tíu sinnum í vetur og vor og verður fyrsta hnýtingarkvöldið haldið klukkan 19.30 í kvöld í húsnæði SVFR að Rafstöðvarvegi 14 í Elliðaárdal. Annars verða hnýtingarkvöldin sem hér segir: 31. janúar, 7. febrúar, 14. febrúar, 21. febrúar, 7. mars, 21. mars, 4. apríl, 18. apríl, 2. maí og 16. maí. Á fyrstu þremur kvöldunum verður lögð áhersla á að kenna byrjendum. „Hér er kjörinn vettvangur fyrir vana sem óvana að koma saman, hnýta flugur og spjalla. Allt efni er á staðnum og einnig þau tæki sem þarf til hnýtinganna," segir í vef SVFR. Í Fréttablaðinu þann 31. mars árið 2011 birtist viðtal við Sigurð, sem hægt er að lesa hér.trausti@frettabladid.is
Stangveiði Mest lesið Arnarvatnsheiðin kemur vel undan vetri Veiði Veiddu karlana undir borðið Veiði Steinsmýrarvötn hafa verið að gefa vel Veiði Kastkeppni á skemmtileikum Veiði Elliðaárnar yfir 600 laxa Veiði Allt um veiðihnúta Veiði Þegar litlu flugurnar gefa best Veiði Refaveiðar í uppáhaldi hjá Maríu Veiði Veiðir ufsa á flugustöng við Ægissíðuna Veiði Maðkurinn er kominn yfir 200 krónur stykkið Veiði