LeBron með 71 prósent skotnýtingu í síðustu fimm leikjum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. febrúar 2013 17:45 LeBron James. Mynd/Nordic Photos/Getty
LeBron James hefur verið algjörlega óstöðvandi í síðustu leikjum með Miami Heat í NBA-deildinni í körfubolta eins og áhorfendur Stöðvar 2 Sport fengu að sjá í gær þegar James fór fyrir sigri Miami á móti Kobe Bryant og félögum í Los Angeles Lakers. LeBron James hefur nú verið með 30 stig og að minnsta kosti 60 prósent skotnýtingu í síðustu fimm leikjum sínum. Hann er aðeins þriðji maðurinn í sögu NBA til að ná því (Moses Malone með Houston 1981-82 og Adrian Dantley með Utah 1979-80) og ennfremur fyrsti maðurinn í sögu Miami Heat til að brjóta 30 stiga múrinn í fimm leikjum í röð. LeBron hefur nýtt 71,4 prósent skota sinna í þessum fimm leikjum en hann er þar með 84 prósent nýtingu inn í teig (37 af 44) og 60 prósent nýtingu fyrir utan þriggja stiga línuna (9 af 15). Dwyane Wade skoraði líka 30 stig og hitti úr 65 prósent skota sinna á móti Lakers og urðu þeir aðeins fjórðu liðsfélagarnir í sögu NBA-deildarinnar til þess að ná í því í sama leiknum. Hinir eru: Walt Bellamy og Gus Johnson (Bullets 1964), Alex English og Dan Issel (Denver Nuggets 1982), og Mike Miller og Pau Gasol (Memphis Grizzlies 2007).Síðustu fimm leikir LeBron James:100-85 sigur á Toronto - 30 stig, 8 fráköst, 7 stoðsendingar, 63 prósent skotnýting (10 af 16)99-94 sigur á Charlotte - 31 stig, 8 fráköst, 8 stoðsendingar, 93 prósent skotnýting (13 af 14)114-108 sigur á Houston - 32 stig, 6 fráköst, 5 stoðsendingar, 61 prósent skotnýting (11 af 18)111-89 sigur á LA Clippers - 30 stig, 5 fráköst, 6 stoðsendingar, 82 prósent skotnýting (9 af 11)107-97 sigur á LA Lakers - 32 stig, 7 fráköst, 4 stoðsendingar, 67 prósent skotnýting (12 af 18)
NBA Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Íslenski boltinn BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Clark slegin í augað í frumraun Körfubolti Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Fleiri fréttir Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Sjá meira