Enski boltinn

Benitez: Frábært afrek hjá Frank

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Rafael Benitez, stjóri Chelsea, lofaði Frank Lampard sem skoraði sitt 200. mark á ferlinum í 2-0 sigri liðsins á West Ham.

Lampard kom einmitt frá West Ham til Chelsea fyrir tæpum tólf árum síðan og hefur síðan þá verið í hópu bestu leikmanna ensku úrvalsdeildarinnar.

„Ég er ánægður fyrir hans hönd. Það er frábært afrek að skora 200 mörk og þá sérstaklega fyrir leikmann eins og Frank," sagði Benitez eftir leikinn.

„Frank er frábær leikmaður sem leggur mikið á sig á æfingum á hverjum degi. Það eru enn nokkrir leikir eftir af tímabilinu og vonandi nær hann að skora fleiri mörk."

Eden Hazard skoraði einnig fyrir Chelsea í dag en með sigrinum komst liðið upp í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Liðið er nú fimm stigum á eftir Manchester City sem er í öðru sæti.

„Aðalmálið er að við stöndum saman sem lið og vonandi njóta stuðningsmennirnir góðs af því. Ég er virkilega ánægður með stemninguna í liðinu," sagði Benitez.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×