Enski boltinn

Myndband af þrumufleyg Lowton

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Paul Lambert, stjóri Aston Villa, lofaði Matthew Lowton fyrir markið sem hann skoraði í 3-1 sigri liðsins á Stoke í dag.

Lowton skoraði stórglæsilegt mark eins og sjá má í meðfygljandi myndbandi. Sigurinn gæti reynst Aston Villa mikilvægur í hörðum fallbaráttuslag ensku úrvalsdeildarinnar.

„Þú sérð hvergi betra mark í Evrópu en þetta. Tæknin, stjórnin og skotið voru framúrskarandi. Hann hefur spilað hverja einustu mínútu í deildinni og verið framúrskarandi," sagði Lambert eftir leikinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×