Körfubolti

Jackson rekinn frá Spurs

Forráðamenn San Antonio Spurs hafa verið mjög ósáttir við Stephen Jackson upp á síðkastið og ákváðu því að segja honum upp störfum.

Jackson hefur ekki verið sáttur við hlutverk sitt hjá félaginu og var mat forráðamanna liðsins að hann væri farinn að hafa neikvæð áhrif á liðið.

Því ákvað félagið að losa sig við hann rétt fyrir úrslitakeppnina. Jackson mun ekki geta spilað með öðru liði í úrslitakeppninni og er því farinn í sumarfrí.

Mörgum finnst Spurs vera að taka áhættu með þessu útspili enda sé breiddin ekki mikil og svo er Boris Diaw þess utan meiddur.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×