Körfubolti

Gaf eina milljón dollara í neyðarsjóð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Durant í leik gegn LA Lakers.
Durant í leik gegn LA Lakers. Mynd/AP

Kevin Durant, einn besti leikmaður NBA-deildarinnar í körfubolta og leikmaður Oklahoma City, gaf eina milljón dollara til Rauða krossins vegna hamfarana í Oklahoma á dögunum.

Öflugir skýstrókar lagði stórt svæði í rúst með þeim afleiðingum að minnst 24 eru látnir, hundruð slasaðir og fjölmargir heimilislausir.

Oklahoma City Thunder gaf einnig eina milljón dolllara, um 123 milljónir króna, til Rauða krossins. NBA-deildin gerði slíkt hið sama sem og leikmannasamtök deildarinnar.

Var þeim þakkað fyrir stuðninginn í yfirlýsingu enda þörfin mikil eftir hamfarirnar.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×