Fullyrða má að það hafi tekist og sáust fyrstu bílbeltin í bandarískum bílum árið 1963, eða fyrir hálfri öld. Uppfinningamaðurinn var Nils Bohlin sem unnið hafði fyrir flugvéladeild Saab og hannaði þar sæti sem skutu flugmönnum útúr vélunum þeim til bjargar ef þær yrðu skotnar niður. Í flugvélasætunum voru þriggja punkta öryggisbelti sem hann flutti með sér í bíla Volvo.
Fram að því höfðu öryggisbelti einungis verið tveggja punkta og lágu aðeins yfir mitti ökumanns og ollu oft meira tjóni en gagni við árekstur eða veltur. Volvo hefði getað hagnast mjög á þessu einkaleyfi en fannst meira um vert að aðrir bílaframleiðendur nytu góðs af þessari uppfinningu og hafi Volvo hrós fyrir það.
Bohlin vann áfram að öryggismálum fyrir Volvo til ársins 1985 og kom að vörnum við hliðarárekstur og öryggisbeltum í aftursætum. Hann dó árið 2002 en hafði þá verið veitt heiðursverðlaun fyrir framlag sitt til öryggismála í bílum og hlaut meðal annars gullmedalíu frá Swedish Royal Academy of Engineering Science og var tekinn inn í frægðarhöllina Automotive Hall of Fame.
Volvo hefur sagt að einni milljón mannslífa hafi verið bjargað með öryggisbeltunum og er það að þakka viðhorfi Volvo til öryggismála umfram fjárhagslegan ávinning.
