Bandarískir rapparar hrifnir af Actavis Frosti Logason skrifar 27. ágúst 2013 13:42 Actavis sírópið þykir víst gott með hinum ýmsu jurtum.
Öllum að óvörum er Actavis orðið viðurkennt slangur yfir vinsælasta vímugjafann í bandarísku hip hop senunni. Málið var rætt í útvarpsþætti Harmageddon í morgun og má heyra hér ofan. Drykkur sem lengi vel hefur verið kallaður Purple drank og er samsuða af lyfseðilsskyldum hóstamixtúrum og svalandi gosdrykkjum hefur lengi verið þekkt fyrirbæri í þessum kúltúr. En nú er svo komið að rappararnir þar vestra virðast vera orðnir sammála um að Actavis sé með langbesta stöffið í þessum bransa. Hafa margir tónlistarmenn því verið að votta íslensk-ættaða lyfjarisanum virðingu sína fyrir framleiðsluna bæði í tónlist sinni og myndböndum. Ef leitarorðinu Actavis er slegið inn á YouTube má sjá hálfgerðan faraldur tengdan þessu fyrirbæri eins og sjá má hér. Faraldurinn er ekki minni á Instagram. Þar koma upp hvorki fleiri né færri en 55 þúsund myndir undir sama leitarorði. Tékkið líka á myndböndunum hér fyrir neðan. Sjón er sögu ríkari!P.Bricks og MoneyBoyFli með lagið Actavis Hér má sjá rapparana Crooked I og Niqle Nut dásama gæðin í Actavis hóstamixtúrunni: Lil Blood og Boo Banga af plötunni Cream Soda & Actavis Chris Travis með lagið Actavis Íslendingar láta sitt ekki eftir liggja. Hér er lagið Actavis með Gula drekanum og Stjána.
Harmageddon Mest lesið Sigurður Einarsson kominn á Kvíabryggju Harmageddon Of Monsters And Men eru byrjuð að vinna að nýju efni Harmageddon Sannleikurinn: Brynjar Níelsson varpar enn einni sprengjunni Harmageddon Krefjast þess að strætóskýlinu verði skilað Harmageddon Rokkprófið - Agnes í Sykur vs. Nanna í Of Monsters Harmageddon Axl Rose fordæmir forseta Indónesíu Harmageddon Nordic Playlist setur upp útvarpsstöð í Reykjavík Harmageddon Fyrirmyndarmæður slá í gegn á internetinu Harmageddon Styttur Reykjavíkur fá ný heyrnartól Harmageddon Metallica í Heimsmetabók Guinness Harmageddon