Fór inn í bílskúr til þess að kasta upp Frosti Logason skrifar 20. ágúst 2013 16:00 Elín Inga segir ekki mögulegt að komast yfir sjúkdóminn án aðstoðar fagfólks.
Elín Inga Bragadóttir þróaði með sér átröskun við tólf ára aldur. Elín Inga segir Harmageddon frá reynslu sinni af átröskun sem hún sigraðist á með aðstoð fagfólks og vina. Hægt er að hlusta á upptöku af viðtalinu hér að ofan. Elín æfði mikið af íþróttum sem barn og segist hafa byrjað að þróa með sér sjúkdóminn þegar hún og vinkonur hennar fóru að setja sér strangar reglur um mataræði til að ná betri árangri. Smátt og smátt fór hún svo að ganga lengra en vinkonurnar og á endanum var hún farin að ljúga að fjölskyldu sinni til þess að komast hjá því að borða með þeim morgunmat. „Ég man eftir því að hafa einhvernvegin, af því að ég komst ekki inn á baðherbergi, farið inn í bílskúr og kastað upp í fötu. Þetta er geðsjúkdómur. Þetta eru ekki rökréttar hugsanir sem þú ert að hugsa, en ef viljinn er fyrir hendi þá eiginlega tekst manni að fela rosa margt“. Í tilfelli Elínar Ingu var það móðir hennar sem að áttaði sig á því hvað væri að og það var fyrir tilstilli hennar sem Elín Inga leitaði sér aðstoðar á barna og unglingageðdeild Landspítalans.
Harmageddon Mest lesið Sannleikurinn: Vodafone ráðleggur viðskiptavinum sínum að skipta yfir í Nova Harmageddon Sannleikurinn: Ómar Ragnarsson handsamaður Harmageddon Var Jesú Kristur fyrsti talsmaður skrattans? Harmageddon Þið sem hélduð að geitungar væru andstyggilegir Harmageddon Vildu fá að ritskoða spurningar Harmageddon Refsistefna í fíkniefnamálum endurskoðuð Harmageddon Þegar Loftur spjallaði við Harmageddon Harmageddon Hvaða samfélagsmiðlaplága kemur næst? Harmageddon Óupplýstum æsifréttamanni pakkað saman af pollrólegum dýrafræðingi Harmageddon Tuttugu ára afmæli X-977 - Maus Harmageddon