Heill tugur mætti til makrílveislu Frosti Logason skrifar 9. september 2013 13:52 Þeir voru vígalegir liðsmenn Heimssýnar á grillinu í gær. Mynd/ Vilhelm Gunnarsson
Heill tugur manna var saman komin á Ingólfstorgi í gær. Tilefnið var að sjálfsögðu hin mikla makrílveisla Heimssýnar, hreyfingu sjálfstæðissinna í Evrópumálum, en þau hafa verið óþrjótandi í baráttunni við hið andstyggilega Evrópusamband. ESB hefur verið á móti því að Íslendingar þurrki upp makrílstofna í Norðurhöfum og vilja forráðamenn sambandsins að Íslendingar semji um málið við önnur ríki í Evrópu. Þessu eru félagsmenn Heimsýnar náttúrulega ósammála og vilja þeir miklu frekar að Íslendingar sitji einir að veislunni. Til þess að undirstrika mikilvægi þessarar einörðu afstöðu sinnar buðu þeir Íslendingum að smakka þetta hnossgæti sem makríllinn er á Ingólfstorgi í gær. Viðtökurnar voru hreint út sagt frábærar. Talið er að allt að 15 manns hafi verið á svæðinu þegar mest lét, þar af voru tveir Færeyingar og einn Grænlendingur. mynd/Daníel Orri EinarssonGríðarlegt fjölmenni var þegar mest lét og greinilegt að Íslendingar ætla ekki að láta evrópska blýantanagara ráðskast með sig. Samhugurinn er mikill og þrautseigjan gríðarleg hjá Hreyfingu sjálfstæðissinna í Evrópumálum.Mynd/Vilhelm GunnarssonTil þess að tryggja fjölmenna mætingu á svæðið voru hinir feykigóðu Harmonikkubræður fengnir til þess að flytja nokkur frábær harmonikkulög á meðan á samkomunni stóð. Einn viðstaddra sem Harmageddon ræddi við sagði að stemmningin hafi verið ólýsanlega góð. Mynd/Vilhelm GunnarssonÍ fyrstu leit út fyrir að mætingin yrði ekkert til að hrópa húrra fyrir en um leið og Harmonikkubræður byrjuðu að spila sínu ljúfu og þjóðlegu tóna rættist vel úr. Talið er að allt að fimmtán manns hafi verið saman komin á torginu þegar stuðið stóð sem hæst. Það er því nokkuð ljóst að Heimsýnarfólkið vann mikið þrekvirki með veislunni í gær.
Harmageddon Mest lesið Sannleikurinn: Sminkurnar á Stöð 2 að gefast upp á Loga Bergmann Harmageddon Ræða Martin Luther King framkallar enn gæsahúð Harmageddon Hinn skrautlegi Nick Oliveri aftur til liðs við Queens of the Stone Age? Harmageddon Fannst ekki spennandi að spila Little Talks fimm sinnum á dag Harmageddon Queens of the Stone Age á toppi Pepsi Max listans Harmageddon Grimmur gyðingur fallinn frá Harmageddon Sannleikurinn: Nýr þáttur Gísla Marteins mun heita Gísli Marteinn með Gísla Marteini Harmageddon Kæmi ekki til baka nema breyting yrði á forystu flokksins Harmageddon Miðasalan á Eistnaflug er hafin. Harmageddon Trommari Slipknot segist ekki hafa hætt í hljómsveitinni Harmageddon