Fullvaxinn lúxusbíll sem eyðir 3,1 lítra Finnur Thorlacius skrifar 29. október 2013 13:45 Porsche Panamera Hybrid er sparibaukur á hjólum.
Það er ekki að spyrja að tæknifullkomnun hinna þýsku verkfræðinga Porsche. Nú er farið að styttast í kynningu á Porsche Panamera Hybrid, en sá bíll markar tímamót í framleiðslu á stórum fjögurra dyra lúxusfólksbíl, en bíllinn sá eyðir svo litlu sem 3,1 lítra eldsneytis á hverja hundrað kílómetra. Svoleiðis tölur sjást helst í afllitlum títlum með smávélar, en því er ekki að heilsa með þennan bíl. Hann er 416 hestöfl og með 590 Nm tog. Brunavél bílsins skaffar 333 af þessum hestöflum og rafmótorar restina. Bílnum má aka fyrstu 36 kílómetrana eingöngu á rafmagni með hámarkshraðann 135 km/klst. Með öll þessi hestöfl er bíllinn aðeins 5,5 sekúndur í hundraðið og hámarkshraðinn er 270 km/klst. Mengun frá bílnum er lítil 71 g/km af CO2. Eitt það albesta við þennan bíl er hversu fljótt má endurhlaða rafgeymana, en það tekur aðeins 2,3 klukkustundir með hleðslustöð sem kaupa má með bílnum og setja upp heimavið. Samhliða framleiðslu á þessum bíl hefur Porsche hannað forrit, eða „app“, fyrir snjallsíma þar sem sjá má stöðu rafhleðslunnar, hversu langt má aka á henni eingöngu og þar má einnig stjórna hleðslutíma hans og hversu heitan ökumaður vill hafa bílinn að innan er í hann er komið. Reynsluökumaður Fréttablaðsins og Vísis mun reynsluaka þessum bíl í byrjun desembermánaðar í Þýskalandi og verður umfjöllun um hann sjáanleg í blaðinu þann mánuðinn.
Mest lesið Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Innlent Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið Innlent Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu Innlent Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Innlent Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Innlent Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Innlent „Andrúmsloftið er þungt og það eru allir slegnir“ Innlent Myndataka í lágloftunum vekur athygli Innlent Grunaður barnaníðingur í varðhaldi á grundvelli almannahagsmuna Innlent „Það þarf kjark til að viðurkenna mistök“ Innlent