Mikill áhugi fyrir rafbílum Finnur Thorlacius skrifar 1. nóvember 2013 10:15 Gísli Böðvarsson sölustjóri Tryggingamiðlunar Íslands og Friðbert Elí Friðbertsson framkvæmdastjóri taka við nýjum Nissan Leaf rafbílum frá Kristmanni Dagssyni sölumanni BL
Biðfreiðaumboðið BL sem flytur inn rafbílinn Nissan Leaf hefur nú þegar selt eða tekið á móti pöntunum á þriðja tug rafbíla síðan hann var kynntur í lok ágúst. Rafbílum fer því hratt fjölgandi á Íslandi þessa dagana. "Við finnum fyrir sterkum og jákvæðum viðbrögðum frá bæði einstaklingum og fyrirtækjum. Þeir sem leita til okkar að fræðast um rafbíla hafa undantekningalaust mikinn áhuga og spyrja mikið um nýju tæknina og við að sama skapi leggjum okkur fram um að svara öllum spurningum eins faglega og við getum" segir Rúnar H. Bridde sölustjóri Nissan. "Það er sérlega gaman að fara með fólk í fyrsta reynsluakstur á rafbíl því það er greinilegt að fólk er að upplifa eitthvað alveg nýtt og framandi sem kemur því á óvart. Sölumenn okkar heyra gjarna setningar eins og “þetta er ótrúlega skrýtið, það heyrist ekki neitt” og það er alveg greinilegt að fólki finnst gaman að keyra bílana. Við fáum einnig töluvert af reynslusögum frá viðskiptavinum sem hafa þegar keypt rafbíl og einn kom til okkar um daginn og sagði “Við keyptum bílinn sem aukabíl á heimilið en hann er í raun bíll númer eitt því allir vilja fara á rafbílnum” sagði Rúnar ennfremur.
Mest lesið Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent