Körfubolti

NBA: Indiana áfram taplaust - annar sigur Boston í röð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Paul George hjá Indian Pacers.
Paul George hjá Indian Pacers. Mynd/AP
Indiana Pacers er eina ósigraða lið NBA-deildarinnar í körfubolta og það breyttist ekki í nótt þegar liðið vann sinn sjötta leik í röð. Los Angeles Lakers og Brooklyn Nets töpuðu sínum leikjum en Boston Celtic og Philadelphia 76ers unnu.

Paul George skoraði 18 af 23 stigum sínum í seinni hálfleiknum þegar Indiana Pacers vann 91-84 sigur á Toronto Raptors. George var einnig með 8 fráköst og 6 stoðsendingar. Roy Hibbert skoraði 20 stig fyrir Indiana-liðið og George Hill var með 14 stig en Rudy Gay skoraði 30 stig fyrir Toronto.

Evan Turner var með 22 stig, 10 fráköst og 5 stoðsendingar þegar Philadelphia 76ers vann 94-79 sigur á Cleveland Cavaliers. 76ers-liðið vann upp fjórtán stiga forskot Cleveland í fjórða sigri sínum í sex leikjum.

Carmelo Anthony skoraði 28 stig og Andrea Bargnani var með 25 stig þegar New York Knicks vann 101-91 sigur á Charlotte Bobcats.

Bradley Beal skoraði 27 stig þegar Washington Wizards vann 112-108 sigur á Brooklyn Nets í framlengdum leik en þetta var þriðja tap Brooklyn í fimm leikjum. Trevor Ariza setti niður risa þrist 40,3 sekúndum fyrir lok framlengingarinnar en Nene tryggði Wizards-framlenginguna 1,2 sekúndum fyrir leikslok.

Boston Celtics fagnaði sínum öðrum sigri í röð þegar liðið vann Orlando Magic 91-89 þar sem Brandon Bass var stigahæstur með 16 stig. Boston tapaði fjórum fyrstu leikjum sínum undir stjórn Brad Stevens en er að vinna þessa leiki á öflugri vörn og sameiginlegu átaki í sókninni.

Kevin Durant skoraði 37 stig, tók 8 fráköst og gaf 7 stoðsendingar í 119-100 sigri Oklahoma City Thunder á Detroit Pistons. Russell Westbrook var með 20 stig en hitti aðeins úr 5 af 19 skotum sínum. Thunder-liðið hefur unnið 4 af 5 leikjum sínum.

Anthony Davis skoraði 32 stig þegar New Orleans Pelicans vann 96-85 sigur á Los Angeles Lakers en 11 stiga hans komu í lokaleikhlutanum. Lakers-liðið tapaði þarna sínum fyrsta leik fyrir New Orleans síðan 2010.

Kevin Martin skoraði 23 af 32 stigum sínum í seinni hálfleik og Kevin Love var með 32 stig, 15 fráköst og 8 stoðsendingar þegar Minnesota Timberwolves vann 116-108 sigur á Dallas Mavericks.

Luol Deng var með 19 stig, 11 fráköst, 9 stoðsendingar og 5 stolna bolta þegar Chicago Bulls vann 97-73 sigur á Utah Jazz. Utah-liðið hefur tapað fyrstu sex leikjum sínum.

Öll úrslitin í NBA-deildinni í nótt:

Charlotte Bobcats - NY Knicks 91-101

Indiana Pacers - Toronto Raptors 91-84

Orlando Magic - Boston Celtics 89-91

Philadelphia 76ers - Cleveland Cavaliers 94-79

Washington Wizards - Brooklyn Nets 112-108 (framlenging)

Detroit Pistons - Oklahoma City Thunder 110-119

Chicago Bulls - Utah Jazz 97-73

Minnesota Timberwolves - Dallas Mavericks 116-108

New Orleans Pelicans - LA Lakers 96-85

San Antonio Spurs - Golden State Warriors 76-74

Phoenix Suns - Denver Nuggets 114-103

Portland Trail Blazers - Sacramento Kings

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×