Körfubolti

Portland búið að vinna sjö leiki í röð

Leikmenn Portland fagna í gær.
Leikmenn Portland fagna í gær.
Portland Trailblazers hefur komið skemmtilega á óvart í upphafi leiktíðar í NBA-deildinni. Liðið vann í nótt sinn sjöunda leik í röð.

Að þessu sinni vann liðið sigur á Brooklyn. Liðið er búið að vinna níu leiki og tapa tveimur. Damian Lillard skoraði 19 stig fyrir Blazers og gaf níu stoðsendingar. LaMarcus Aldridge skoraði 27 stig.

Shaun Livingston var stigahæstur hjá Nets með 23 stig.

Úrslit:

Brooklyn-Portland  98-108

Chicago-Charlotte  86-81

Oklahoma-Denver  115-113

Dallas-Philadelphia  97-94

Utah-Golden State  87-98

LA Clippers-Memphis  102-106

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×