Handboltamaður gerði það sem hann vildi með sinn pening Andri Þór Sturluson skrifar 15. nóvember 2013 08:51 Það kemur okkur öllum við hvað þessi maður gerir við sína peninga, af því að hann er íþróttamaður.
Þekktur handboltamaður, Sigfús Sigurðsson, fyrrverandi landsliðsmaður, gerði það sem hann vildi með pening sem hann hafði unnið sér inn. Um málið er ítarlega fjallað í fjölmiðlum í dag. Forsaga málsins er sú að maðurinn stritaði allt sitt líf til að komast í hóp þeirra bestu á landinu á sínu sviði. Sem laun fyrir vinnu sína og erfiði fékk hann peninga. Eftir einn ákaflega erfiðan og annasaman vinnudag í Peking 2008 þar sem hann og vinnufélagar hans stóðu sig gríðarlega vel, fengu þeir silfurpening að launum. Í staðinn fyrir að geyma hann uppi á hillu eins og allt venjulegt fólk gerir við launin sín reyndi hann að skipta peningnum í aðra mynt, það er að segja krónur. Það hneykslaði marga sem fannst hann gera lítið úr vinnuveitanda sínum, en eins og allir vita er maður skyldaður til að notast við þá mynt sem maður fær upphaflega útborgað í. Þetta vitum við Íslendingar vel. Til að forðast svona hneyksli í framtíðinni er best ef það myndi komast á sátt um það að hafa verðlaunapeninga í evrum.
Harmageddon Mest lesið Sannleikurinn: Fjárlagafrumvarpið fær 2 stjörnur Harmageddon Heitasti kvensjúkdómalæknir í heimi Harmageddon Miðasalan á Eistnaflug er hafin. Harmageddon Hljómsveitt frumsýnir Næs í rassinn Harmageddon Bylting í meðhöndlun verkja? Harmageddon Er verið að leggja eina valdamestu konu landsins í einelti? Harmageddon Segja ríkið gefa frá sér 23 milljarða til vogunarsjóða Harmageddon Sannleikurinn: Stjörnurnar minnast Philip Seymour Hoffman Harmageddon Myndir af Breivik nokkrum mínútum eftir handtöku Harmageddon Arcade Fire á toppi breska breiðskífulistans Harmageddon