Blóðbað í Brooklyn Frosti Logason skrifar 11. nóvember 2013 17:00
Vefsíðan Gawker.com segir frá því að íranskur tónlistarmaður hafi skotið þrjá hljómsveitarfélaga sína og síðan sjálfan sig til bana nú snemma morguns í sameiginlegri íbúð þeirra í Brooklyn, New York. Samkvæmt fréttinni notaði gerandinn hálf sjálfvirkan riffil í árásinni sem átti sér stað laust eftir miðnætti í gær. Árásarmaðurinn byrjaði á því að særa eina manneskju fyrir utan íbúðina áður en hann gekk inn, skaut tvo til bana á annarri hæð hússins og svo loks þann þriðja, sem lá sofandi í rúmi sínu, á efstu hæðinni. Tvær manneskjur földu sig inni á baðherbergi íbúðarinnar og sluppu þannig ómeiddar frá voðaverkinu. Að lokum skaut árásarmaðurinn sjálfan sig á þaki byggingarinnar samkvæmt lögreglunni í New York.New York Times fjölluðu einnig um málið og spjölluðu við nágranna mannana sem sagði að þeir höfðu verið saman í hljómsveitinni Yellow Dogs. Árásarmaðurinn hafði verið rekin úr sveitinni skömmu áður og virðist samkvæmt þessu ekki hafa tekið því vel. Ekkert hefur þó verið gefið upp um eiginlegar ástæður árásarinnar þó þetta virðist vera rökrétt ályktun. Allir meðlimimr sveitarinnar voru frá Íran og komu fram í verðlaunaðri heimildarmynd frá árinu 2009 sem fjallaði um neðanjarðar rokktónlistarsenu í Tehran. Eftir að myndin, No One Knows About Persian Cats, kom út árið 2009 flúðu meðlimirnir til bandaríkjanna og óskuðu eftir hæli sem þeir fengu árið 2010, en samkvæmt myndinni er ólöglegt fyrir íranska borgara að spila saman í rokkhljómsveit þar í landi.
Harmageddon Mest lesið Píratar bjóða fram í Reykjavík Harmageddon Maðurinn sem framleiðir sitt eigið áfengi innvortis Harmageddon „Við þurfum að kenna krökkum að taka eiturlyf með öruggum hætti“ Harmageddon Hljómsveitin Maus loksins aftur á svið Harmageddon Íslam í Reykjavík Harmageddon Sannleikurinn: Halda að fólk myndi virkilega kaupa lélega tónlist og myndir Harmageddon The Cure, Kiss, Alice Cooper og fleiri á Paul McCartney heiðursplötu Harmageddon Söngvari Stone Roses vitni í kynferðisafbrotamáli Harmageddon Sannleikurinn: Sminkurnar á Stöð 2 að gefast upp á Loga Bergmann Harmageddon Tíu ástæður fyrir því að hugmynd Vigdísar er rosalega vond Harmageddon