Körfubolti

Rose þarf að leggjast undir hnífinn

Derrick Rose.
Derrick Rose.
Það fékkst staðfest í kvöld að stjörnuleikmaður Chicago Bulls, Derrick Rose, þarf að fara í aðgerð vegna hnémeiðslanna sem hann varð fyrir í gær.

Rose meiddist í þriðja leikhluta gegn Portland. Hann var þá búinn að skora 20 stig. Rannsóknir í dag hafa leitt í ljós að aðgerð verður ekki umflúin.

Ekki liggur fyrir hversu lengi Rose verður frá á þessari stundu en það verður klárlega talsverður tími. Ekki er talið að hann muni missa af öllu þessu tímabili.

Þetta er mikið áfall fyrir Bulls og Rose enda er leikmaðurinn nýbyrjaður að spila aftur eftir eitt og hálft ár utan vallar vegna hnémeiðsla. Meiðslin eru ekki á sama hné og gaf sig síðast.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×