Stefán Logi Sívarsson, einn fimmmenninganna sem ákærðir eru fyrir frelsissviptingar og sérstaklega hættulegar líkamsárásir í Stokkseyrarmálinu svokallaða, neitar sök í öllum ákæruliðum er snúa að árásunum.
Hann kannast ekki við að hafa beitt mennina tvo í Stokkseyrarmálinu neinu ofbeldi. Segist hann hafa verið á fylleríi með öðrum manninum í marga daga. „Bara neyslufyllerí.“ Sá hafi verið með þeim sem félagi en ekki fórnarlamb.
Aðalmeðferð hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun, en ákæra ríkissaksóknara er í mörgum liðum. Mest ber á þeim Stefáni Loga, 31 árs, og Stefáni Blackburn, 21 árs. Báðir eiga þeir mikla brotasögu. Hinir mennirnir þrír, Davíð Freyr Magnússon, Hinrik Geir Helgason og Gísli Þór Gunnarsson, eru fæddir árin 1990 og 1992 og hafa allir komið áður við sögu lögreglu.
Aðalmeðferðin átti að hefjast klukkan níu en henni var frestað um stutta stund þar sem fangaverðir töfðust í flutningum ákærðu frá Litla Hrauni.
Margir verðir fylgdu ákærðu en ákæruvaldið gerði í upphafi þá kröfu að sakborningar yrðu ekki viðstaddir framburð annarra og dómarinn samþykkti það. Taldi sækjandinn að einhverjir framburðir í málinu væru litaðir af ótta við afleiðingar sem þeir kynnu að verða fyrir af hendi annarra ef þeir segðu rétt frá.

Fram hefur komið í máli annarra ákærðu að lögreglunni hafi verið mikið í mun að „ná“ Stefáni Loga og nafna hans Blackburn. „Ég veit ekkert um þetta mál, ég man ekkert eftir þessu,“ segir Stefán Logi um árásina í Breiðholti.
Hann segist hafa verið að jafna sig eftir líkamsárás á þessum tíma og handleggsbrotinn á báðum höndum. „Ég var ekki fær um að beita neinn ofbeldi,“ sagði hann.
„Ég er enginn guð,“ sagði Stefán Logi aðspurður um hvort hann hafi gefið fyrirskipanir um þessar líkamsárásir og frelsissviptingar. Hann neitaði því að hann hefði átt sökótt við annan manninn vegna sambands hans við fyrrverandi kærustu Stefáns. Hann segist hafa verið fullur og reiður. Seinna um kvöldið hafi hann farið í „blackout“ og sagðist hann ekki muna neitt meira.
Stefán Logi er ákærður fyrir að skalla og bíta fyrrverandi tengdaföður sinn og dælda bíl hans. Þegar spurt var um þennan lið neitaði Stefán. „Hann var að reyna að stinga mig með risa hníf,“ segir Stefán um tengdaföðurinn fyrrverandi og segir hann vera Evrópumeistara í júdó.
„Ég var mjög illa haldinn andlega og líkamlega,“ segir Stefán um ástand sitt á þessum tíma og bætir við að hann hafi drukkið mikið og dópað.

Stefán segist hafa verið edrú í sex ár þar til hann var dæmdur „saklaus“ í héraði fyrir glæp sem hann framdi ekki. Eftir það hafi hann byrjað aftur að neyta fíkniefna af því hann sá enga aðra leið út.
Stefán neitar árás á barnsmóður sína, en hann er ákærður fyrir að hafa vafið belti af baðslopp um háls hennar og dregið hana um íbúð. Stefán Logi neitar þessu alfarið, hann hafi bara gripið aðeins um hálsmálið á henni og hrist hana aðeins. „Þetta var bara smá reiði bara.“ Stefán Logi segir kæru barnsmóðurinnar bara verið hefnd, hún hafi einnig ráðist á hann.
Dómarinn spyr hvort Stefán eigi eitthvað sökótt við mennina báða, spyr hann af hverju hann telji að þeir séu að bera hann röngum sökum. Stefán segist ekki vita af hverju þeir séu að bera upp á hann þessar sakir séu þær að annar maðurinn vilji fá peninga í skaðabætur.
Stefán segir að hinir strákarnir (ákærðu) séu mögulega að reyna að ganga í augun á sér með því að berja þessa menn. Stefán segir að ákærurnar séu fáránlegar, og neitar hann öllum ákæruliðum ítrekað hingað til. Hann játar hins vegar sjö umferðarlagabrot þar sem hann var að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna.

Á eftir Stefáni Loga gaf Stefán Blackburn skýrslu. Ákæruvaldið bað um að fjölmiðlabann yrði sett á áður en hann gaf skýrslu en dómarinn frestaði því að taka afstöðu til þeirrar kröfu.
Stefán Blackburn neitar sök í málinu, og segist ekki kannast við þá atburði sem fyrir honum er lýst um árásirnar. Hann segist hafa verið í mikilli fíkniefnaneyslu og þjáist af minnisleysi eftir bílslys.
Stefán Blackburn kannast ekki við að hafa fengið símtal frá Stefáni Loga áður en haldið var í Grafarvoginn þar sem maðurinn var numinn á brott. Ég kannast bara ekki við þetta mál, ég get ekki kallað fram neinar minningar um þetta mál,“ segir hann.
Stefán Blackburn kannast ekki heldur við að hafa farið með manninn á Stokkseyri. Hann segist fá mikla höfuðverki, „svona mígrenisverki“. Hann fékk að eigin sögn ekki að hitta lækni þegar hann var með margbrotinn fót eftir handtöku.
Þá var spurt um umferðarlagabrot, og neitaði Stefán Blackburn sök, sem og framhaldsákærunni þar sem hann er sakaður um líkamsárás.

Fyrr í morgun sögðu Davíð Freyr og Hinrik Geir, tveir hinna ákærðu, frá atvikum árásarinnar í júní þegar þeir réðust inn á heimili mannsins í júní síðastliðnum.
Davíð sagðist hafa verið „mökkdópaður“ og hann myndi ekki nákvæm smáatriði. Bæði Davíð Freyr og Hinrik Geir vildu lítið tjá sig um hlut annarra í árásinni og neituðu að svara spurningum tengdum Stefáni Loga og aðkomu hans að málinu. Hinrik segir málið hafa verið blásið upp af fjölmiðlum og lögreglu, þetta hafi bara verið slagsmál „eins og maður lendir í á djamminu“.
Manninum var haldið fyrst í Trönuhrauni í Hafnarfirði, en fram hefur komið að Sívar faðir Stefáns Loga, hafi verið skráður fyrir því húsnæði. Þaðan var hann fluttur til Stokkseyrar þar sem honum var síðar sleppt.
Maðurinn varð fyrir miklum afleiðingum af ofbeldinu sem hann var beittur en enn sem komið er kannast ákærðu ekki við það hvernig það er til komið.
Segir manninum alltaf verið frjálst að fara
Næst á eftir Davíð Frey gaf Gísli Þór skýrslu. Hann sagðist hafa verið undir miklum áhrifum fíkniefna þetta kvöld. Brotaþolar í málinu eru tveir, annars vegar sá sem farið var með á Stokkseyri og síðan annar sem varð fyrir ofbeldi í Breiðholti. Gísli segist hafa aðstoðað annan manninn í Breiðholtinu, geymt fyrir hann símann hans og skutlað honum að ná í verkjalyf um morguninn.
Gísli segir að í Breiðholtinu hafi Stefán Logi verið staddur þarna um morguninn, sofandi ásamt sér, manninum og öðrum manni. Hann segir að brotaþola hafi alltaf verið frjálst að fara, þetta hafi bara verið partý sem hann var staddur í af eigin vilja.
Gísli segir ekkert að marka lögregluskýrslurnar í málinu, hann hafi verið þvingaður. Hann segist enn fremur hafa sagt það sem lögreglan vildi heyra þar sem hún hafi lofað honum að hann fengi „að labba“ ef hann segði frá.
Skýrslutökur af vitnum og ákærðu munu standa yfir í allan dag og fram á morgundag.