Hér á Íslandi selur Bílabúð Benna Chevrolet bíla og seljast Chevrolet bílar mjög vel hér á landi og í ár er Chevrolet með um 9% hlutdeild. Ekki kæmi það neitt á óvart að Bílabúð Benna myndi tryggja sér eitthvert annað bílamerki í stað Chevrolet, en fyrirtækinu hefur gengið vel í sölu, öndvert við víða annarsstaðar í álfunni. Kemur þá fyrst uppí hugann merki Opel, sem ekki hefur gengið sem best að selja hér á landi, enda var merkið dregið af markaði hérlendis til lengri tíma.
Í fréttatilkynningu sem var að berast frá Bílabúð Benna segir:
„Bílabúð Benna hefur undanfarna mánuði átt í viðræðum við bílaframleiðendur um að stækka vörulínu sína og er spennandi frétta að vænta af þeim viðræðum fyrir jól. Þessi óvænta ákvörðun General Motors mun því ekki hafa teljandi áhrif á rekstur fyrirtækisins,“ segir Benedikt Eyjólfsson forstjóri fyrirtækisins.
Bílabúð Benna mun selja Chevrolet bíla næstu tvö árin og fullur stuðningur helst í varahlutum, þjónustu og ábyrgðum hjá Bílabúð Benna næstu 20 ár.

GM mun þó ekki draga allar bílgerðir sínar alfarið af markaði í Evrópu því Corvette sportbíllinn verður áfram seldur þar, sem og Cadillac bílar. Þá er eitt land undanskilið í þessari ákvörðun, þ.e. Rússland, en Chevrolet bílar hafa átt miklu vinsældum að fagna þar og er fimmta stærsta bílamerkið.
Sala Chevrolet bíla hefur verið stöðug í Evrópu frá því GM setti Chevrolet aftur á markað þar árið 2005, eftir nokkurt hlé, eða um 200.000 bílar. Þar telur um 1,2% af heildarbílamarkaðnum í Evrópu. Frá ársbyrjun og til enda október seldi Chevrolet 152.260 bíla og ef síðustu tveir mánuðirnir eru framreiknaðir gæti heildarsalan numið 183.000 bílum. Salan hefur minnkað fyrstu 10 mánuði ársins í Evrópu sem nemur 17% frá árinu í fyrra.
Opel og systurfyrirtæki þess í Bretlandi, Vauxhall, hafa selt 3% minna af bílum í Evrópu en í fyrra og halda 6,7% markaðarins. Það eru 1.900 söluumboð Chevrolet bíla í Evrópu og mun Chevrolet vinna með hverjum og einum þeirra og ákvarða með þeim framtíðina. Meira en helmingur þeirra selur einnig Opel bíla.