Sannleikurinn: Útvarpsstjóri bjargast úr rústum RÚV Andri Þór Sturluson skrifar 17. desember 2013 21:52 Páll er heppinn að hafa sloppið lifandi úr rústunum.
Páll Magnússon útvarpsstjóri bjargaðist töluvert laskaður úr rústum útvarpshússins í dag. Hann hafði nýverið sagt upp helstu máttarstólpum Ríkisútvarpsins sem varð til þess að bygginginn hrundi. Hann segir í bréfi sem hann sendi á starfsmenn RÚV eftir atvikið að það sé hans skoðun að byggingin sé bara ekki nægilega traust og því mun hann ekki gegna stöðunni áfram. Verið er að bjóða Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, fyrrverandi menntamálaráðherra, starfið í þessum töluðu orðum. Hún gæti byrjað um leið og tökum á Ísland Got Talent lýkur þar sem hún er dómari. Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu sem aðeins er tóm skel eftir seinasta niðurskurð.
Harmageddon Mest lesið Sannleikurinn: Ekki hægt að auglýsa stöðu forstjóra Landspítalans vegna fjárskorts Harmageddon Sannleikurinn: Fjárlagafrumvarpið fær 2 stjörnur Harmageddon 20 ár síðan að Kurt Cobain dó - Allt sem þú þarf að vita um Nirvana Harmageddon Shades of Reykjavík með nýtt lag og myndband Harmageddon Var Jesú Kristur fyrsti talsmaður skrattans? Harmageddon Dómsmálið yfir Gísla hugsanlega mannlegur harmleikur Harmageddon Ofbeldið bein afleiðing af þáttum eins og 70 mínútum og Jackass Harmageddon Styður afglæpavæðingu fíkniefna ef fram koma rök Harmageddon Emilíana hélt hún væri að deyja Harmageddon Keyrir ekki um á Range Rover Harmageddon