Virðing fyrir látnum og lifandi 30. janúar 2013 06:00 „Stofan er mjög fagmannleg og persónuleg og erum við til þjónustu reiðubúnir hvenær sólarhringsins sem er,“ segja Svafar Magnússon og Hermann Jónasson hjá Útfararstofu Svafars og Hermanns. Mynd/GVA
Jarðarfarir og bálfarir eru kveðjuathöfn samfélagsins og um leið tækifæri ættingja og vina til að votta hinum látna virðingu sína. Íslendingar hafa löngum lagt mikla rækt við virðuleika í útförum enda eiga allir rétt á legstað í kirkjugarði, óháð trúfélagi. Útfararstofa Svafars og Hermanns var stofnuð á síðasta ári en á bak við hana standa engir nýgræðingar. Svafar Magnússon hefur starfað við útfararþjónustu í Reykjavík í 17 ár og Hermann Jónasson í 30 ár, bæði í Reykjavík og á Siglufirði. Þeir segja báðir að persónuleg þjónusta sé aðalatriðið þegar kemur að skipulagi útfara. „Stofan er mjög fagmannleg og persónuleg og erum við til þjónustu reiðubúnir hvenær sólarhringsins sem er. Við leggjum aðaláherslu á persónulega og einstaklingsmiðaða þjónustu í öllu ferlinu, frá andláti að hinstu kveðjustund. Það skiptir miklu máli í þessari grein að bera virðingu fyrir bæði látnum og lifandi. Við reynum ávallt að verða við öllum óskum, jafnt hins látna sem aðstandenda.“Huga þarf að ýmsu Svafar og Hermann segja að huga þurfi að mörgum þáttum í kjölfar andláts ástvinar. „Við sjáum í raun um allt ferlið frá andláti. Þá sækjum við viðkomandi einstakling, hvort sem það er á elliheimili, spítala eða á heimili. Við aðstoðum ættingja við val á kistu og frágang ýmissa skjala, til dæmis að sækja dánarvottorð og koma því til sýslumanns. Einnig þarf að huga að blómaskreytingum, krossinum á leiðið, sálmaskránni og tónlistarflutningi við kistulagningu og jarðarför. Við þetta bætast svo oft ýmsir þættir enda geta útfarir verið mjög mismunandi eftir fjölskyldum.“ Útfararstofa Svafars og Hermanns er með mikið úrval af vönduðum kistum og duftkerum. Kisturnar eru mjög fallegar og mikið bólstraðar að innan. Meðal nýjunga er að þær eru bólstraðar inni í lokinu sem gefur þeim hlýlegt yfirbragð. Svafar segir hvítar kistur enn langvinsælastar en þó séu alltaf einhverjir sem vilja viðarlitinn. Meðal nýjunga sem stofan býður upp á eru hvítar háglansandi kistur.Fundað með aðstandendum Það hefur færst í vöxt að kistulagning sé sama dag og útförin fer fram þótt enn sé algengt að dagur eða dagar líði á milli kistulagningar og jarðarfarar. „Annaðhvort er um að ræða hefðbundna jarðarför eða bálför. Bálfarir hafa verið að færast í aukana, sérstaklega á suðvesturhorni landsins þar sem þar er eina bálstofa landsins staðsett.“ Verð útfara er mjög mismunandi og fer það eftir því hversu mikið er lagt í umgjörðina, segir Hermann. „Við leggjum þess vegna mikla áherslu á persónulega þjónustu og reynum alltaf að funda með aðstandendum, í heimahúsi eða á skrifstofu okkar í Síðumúlanum. Það skiptir eðlilega miklu máli að allt sé á hreinu þegar útför er skipulögð. Bæði á það við um verkaskiptingu milli okkar og aðstandenda svo ekkert gleymist og ekki síður upp á kostnað að gera, svo ekkert komi nú að óvörum eftir á.“ Útfararstofa Svafars og Hermanns þjónustar allt landið en mest þó í Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi. Nánari upplýsingar má finna á kvedja.is.
Mest lesið Sagði eldri menn vísvitandi borna röngum sökum en situr uppi með Svarta-Pétur Neytendur Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent Að sofna yfir sjónvarpinu á kvöldin telst ekki með Atvinnulíf Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Himinlifandi og ekki hugsi yfir litlum hlut fagfjárfesta Viðskipti innlent Reka forstjóra danska lyfjarisans sem malar gull á Ozempic Viðskipti erlent Tilefni fyrir ríkið að íhuga sölu Landsbankans Viðskipti innlent Síðasti dropinn á sögulegri stöð Viðskipti innlent Gömlu höfuðstöðvar Icelandair verða hjúkrunarheimili Viðskipti innlent Nova eignast tuttugu prósenta hlut í Dineout Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þjónustudagur Toyota Greiðsluáskorun Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Ókeypis trygging með öllum Hakkapeliita dekkjum frá Nokian Tyres Hvað fær Iðnaðarmaður ársins 2025 í verðlaun? Sjá meira
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent