Við sjáum um allt 28. febrúar 2013 06:00 Guðmundur segir fyrirtæki eins og Flest-Verk lengi hafa vantað en þar eru allir iðnaðarmenn á einum stað. Mynd/Valli „
Við gerum allt frá a til ö, rífum út, færum til lagnir og fleira án þess að húseigendur þurfi að lyfta litlafingri,“ segir Guðmundur H. Reynisson, sölustjóri Flest-Verk ehf., sem sérhæfir sig í endurgerð baðherbergja. „Við hófum reksturinn 2010 og höfum verið að gera upp að meðaltali 200 baðherbergi á ári.“ Guðmundur segir fyrirtæki af þessari gerð hafa sárvantað á Íslandi. „Akkúrat svona þjónustu, þar sem allir iðnaðarmenn eru á einum stað. Þá erum við í samstarfi við trausta innlenda birgja sem eru með alla flóruna í flísum, baðtækjum og fleiru.“ Guðmundur segir framkvæmdir yfirleitt ganga fljótt fyrir sig. „Ef til stendur að breyta öllu taka breytingarnar að meðaltali um tvær vikur, svo hratt gengur þetta.“ Nú standa yfir miklar breytingar hjá fyrirtækinu Flest-Verk. „Við ætlum að opna nýja verslun að Bæjarlind 4 í Kópavogi í apríl, þar sem gamli Players-barinn var áður. Búðin verður troðfull af flísum, baðtækjum og hugmyndum fyrir fólk í leit að öllu því sem þarf fyrir baðherbergið.“ Nánari upplýsingar fást í síma 618-6010. Eins er hægt að senda tölvupóst á gud@flestverk.
Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Viðskipti innlent Fleiri fréttir EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Forsteyptar húseiningar einfalda byggingarferlið Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Frábært ár að baki hjá Bylgjunni Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Opið fyrir innsendingar í Lúðurinn 2025 Greiðsluáskorun Gjöfult samstarf Arion banka og íslenska karlalandsliðsins í yfir tuttugu ár Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Sjá meira